Handbolti

Stórsigrar hjá Stjörnunni og Val

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Solveig Lára skoraði fjögur mörk í Digranesinu í dag.
Solveig Lára skoraði fjögur mörk í Digranesinu í dag. vísir/anton
Stjarnan rúllaði yfir HK, 18-35, þegar liðin mættust í Digranesinu í Olís-deild kvenna í dag.

Þetta var níundi sigur Stjörnunnar í síðustu 10 leikjum en liðið er komið upp í 5. sæti deildarinnar með 26 stig.

Eins og tölurnar gefa til kynna hafði Stjarnan mikla yfirburði í leiknum en staðan í hálfleik var 8-20, Garðbæingum í vil.

Allir útileikmenn Stjörnunnar komust á blað í leiknum en Sandra Rakocevic var þeirra markahæst með sex mörk. Hanna G. Stefánsdóttir kom næst með fimm mörk.

Þórhildur Braga Þórðardóttir var markahæst í liði HK með sex mörk. Kópavogsliðið er með 11 stig í 9. sæti deildarinnar.

Mörk HK:

Þórhildur Braga Þórðardóttir 6, Sigríður Hauksdóttir 3, Emma Havin Sardardóttir 3, Elva Arinbjarnar 2, Sóley Ívarsdóttir 1, Elna Ólöf Guðjónsdóttir 1, Kolbrún Arna Garðarsdóttir 1, Karen Kristinsdóttir 1.

Mörk Stjörnunnar:

Sandra Rakocevic 6, Hanna G. Stefánsdóttir 5, Helena Rut Örvarsdóttir 4, Sólveig Lára Kjærnested 4, Andrea Valdimarsdóttir 3, Arna Dýrfjörð 3, Þórhildur Gunnarsdóttir 3, Stefanía Theodórsdóttir 2, Esther Ragnarsdóttir 2, Nataly Sæunn Valencia 1, Guðrún Erla Bjarnadóttir 1, Kristín Scheving Viðarsdóttir 1.

Sigurlaug Rúnarsdóttir skoraði sex mörk í stórsigrinum á KA/Þór.vísir/ernir
Valur vann sömuleiðis auðveldan sigur á KA/Þór á heimavelli, 30-15. Staðan í hálfleik var 16-8, Val í vil.

Með sigrinum komst Valur upp í 2. sæti deildarinnar en liðið er með 28 stig, jafn mörg og Haukar og ÍBV sem eru í 3. og 4. sætinu.

Kristín Guðmundsdóttir og Sigurlaug Rúnarsdóttir fóru fyrir Valsliðinu í markaskorun en þær gerðu báðar sex mörk.

Birta Fönn Sveinsdóttir skoraði sex mörk fyrir KA/Þór sem er í 11. sæti deildarinnar með sjö stig.

Mörk Vals:

Kristín Guðmundsdóttir 6, Sigurlaug Rúnarsdóttir 6, Íris Ásta Pétursdóttir Viborg 5, Gerður Arinbjarnar 4, Vigdís Birna Þorsteinsdóttir 2, Alexandra Diljá Birkisdóttir 2, Ragnhildur Edda Þórðardóttir 1, Eva Björk Hlöðversdóttir 1, Morgan Marie Þorkelsdóttir 1, Sólveig Lóa Höskuldsdóttir 1, Bryndís Elín Wöhler 1.

Mörk KA/Þórs:

Birta Fönn Sveinsdóttir 6, Laufey Lára Höskuldsdóttir 4, Hulda Bryndís Tryggvadóttir 2, Steinunn Guðjónsdóttir 1, Ásdís Guðmundsdóttir 1, Aldís Ásta Heimisdóttir 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×