Íslenski boltinn

Stormur í hausnum á meðan maður hugsaði málið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
 Finnur Orri Margeirsson skiptir úr grænum búningi Breiðabliks yfir í svarthvítan hluta Hafnarfjarðar.
Finnur Orri Margeirsson skiptir úr grænum búningi Breiðabliks yfir í svarthvítan hluta Hafnarfjarðar. Vísir/Valli
Finnur Orri Margeirsson samdi í gær við FH til næstu þriggja ára en þessi öflugi miðjumaður yfirgefur þar með uppeldisfélag sitt, Breiðablik. Á endanum stóð valið á milli FH, KR og Breiðabliks en Finnur Orri, sem var samningslaus eftir tímabilið, segist sáttur við ákvörðun sína þó að hún hafi vissulega verið erfið. Hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir Breiðablik árið 2008, þá sautján ára gamall, og á alls 163 leiki að baki í deild og bikar fyrir félagið.

„Það var fyrst og fremst erfitt að fara frá Breiðabliki og gaf ég mér smá tíma í að taka þessa ákvörðun. Það var smá stormur hausnum á manni á meðan maður hugsaði málið en það er gott að vera búinn að taka þessa ákvörðun. Það er ákveðinn léttir,“ segir Finnur Orri sem segir spennandi tilhugsun að skipta yfir í FH.

Finnur Orri, sem er 23 ára, er miðjumaður og vill spila sem slíkur, þó svo að hann hafi oft gegnt hluti miðvarðar þegar þess gerðist þörf hjá Breiðabliki.

„Ég geri sjálfur miklar kröfur til mín um að standa mig í þeirri stöðu og ég tel mig geta staðið undir því. Miðjan er mín staða og ræddi ég um það við FH-inga. Það er auðvitað mikil samkeppni um þá stöðu en ég hlakka til að takast á við það.“

Kassim Doumbia var sem kunnugt er dæmdur í fjögurra leikja bann eftir að upp úr sauð eftir úrslitaleik FH og Stjörnunnar í lokaumferð Pepsi-deildar karla í haust en Finnur Orri segir að hann muni ekki leysa hann af.

„Ég tel að FH sé með öfluga varnarmenn og efast ekki um að þeir komist í gegnum leikbann hjá Doumbia. Þeir hafa gert það áður.“

Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, segir sjálfur í samtali við Fréttablaðið að Finnur Orri sé kominn til FH sem miðjumaður.

„Við teljum að hann sé betri miðjumaður en varnarmaður,“ segir Heimir sem segir að það sé mikill fengur að hafa fengið Finn Orra. „Hann býr yfir mikilli reynslu þrátt fyrir ungan aldur, bæði úr deildinni hér heima og Evrópukeppni. Þetta er góð lausn fyrir okkur, nú þegar Hólmar Örn [Rúnarsson] er farinn í Keflavík. Við væntum mikils af honum.“

Finnur Orri útilokar þó ekki að fara í atvinnumennsku ef slíkt tækifæri kemur upp. „Ef eitthvað kemur upp verður það skoðað í samráði við FH.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×