Innlent

Stormur fyrir sunnan og vestan

Stefán Árni Pálsson skrifar
Búast má við suðaustan 15-23 m/s með slyddu eða rigningu, en snjókomu til fjalla, hvassast við S-ströndina.
Búast má við suðaustan 15-23 m/s með slyddu eða rigningu, en snjókomu til fjalla, hvassast við S-ströndina. Vísir/Anton
Búist er við stormi S- og V-lands fram að hádegi og gæti meðalvindur verið rúmlega tuttugu metrar á sekúndu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Veðurhorfur á landinu næsta sólahringinn eru ekki góðar. Búast má við suðaustan 15-23 m/s með slyddu eða rigningu, en snjókomu til fjalla, hvassast við S-ströndina.

Snýst í sunnan 10-18 með skúrum eða éljum eftir hádegi, en styttir upp NA-til í kvöld. Heldur hægari N- og A-lands á morgun. Hiti 0 til 5 stig.

Þegar er snjókoma og skafrenningur á Hellisheiði, Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði og fram eftir morgni. Eins á öðrum fjallvegum vestan og norðvestan til, en á láglendi hlánar. SA-átt, alltað 18-23 m/s sunnan og vestan til og hviður 30-40 m/s á utanverðu Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli þar til um kl. 11 að lægir mikið.

Snjóþekja, skafrenningur og hvassviðri er á Sandskeiði, Hellisheiði og Þrengslum. Hálka er á Mosfellsheiði en annars er og hálka eða hálkublettir mjög víða á Suðurlandi og mikið hvassviðri eins og undir Eyjafjöllum. Mikið Hvassviðri er á Suðurnesjum, Reykjanesbraut og við Kjalarnes en auðir vegir.

Á Vesturlandi eru hálkublettir á flestum leiðum en þæfingsfærð og óveður á Bröttubrekku og þæfingsfærð á Holtavörðuheiði og snjóþekja á Svínadal. Hálkublettir og óveður er á Norðanverðu Snæfellsnesi. Hvassviðri er við Hafnarfjall en auður vegur.

Hálka eða snjóþekja er víða á Vestfjörðum og skafrenningur á fjallvegum. Þæfingsfærð er á Klettshálsi og Mikladal en verið að hreinsa. Þungfært og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði en þar er unnið að mokstri. Ófært og óveður er á Kleifaheiði.

Á Norðurlandi vestra er hálka eða snjóþekja. Hálka og skafrenningur er á Vatnsskarði en snjóþekja á Öxnadalsheiði. Hálka eða hálkublettir eru á Norðurlandi eystra en ófært er á Hólasandi og á Dettifossvegi.

Það er hálka eða hálkublettir á vegum á Austurlandi en greiðfært er frá Fáskrúðsfirði og með suðausturströndinni að Öræfasveit en þar taka við hálkublettir eða hálka.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á laugardag og sunnudag:

Suðvestan og sunnan 10-18 m/s, hvassast við SV-ströndina. Víða él, en bjartviðri á NA- og A-landi. Vægt frost.

Á mánudag:

Suðlæg átt, 8-15 m/s og él, en bjart á N- og A-landi.

Á þriðjudag:

Vaxandi suðaustnátt, hvassviðri eða stormur með slyddu eða snjókomu um kvöldið, en rigningu við ströndina. Hlýnandi veður í bili.

Á miðvikudag:

Suðvestlæg eða breytileg átt og él víða um land. Svalt í veðri.

Á fimmtudag:

Útlit fyrir suðaustanhvassviðri með slyddu eða rigningu.

Hér má fylgjast með veðurvef Vísis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×