Handbolti

Stórleikur Szölösi skilaði Fylki tveim stigum

Eyjastúlkur stóðu eftir tómhentar eftir hörkuleik.
Eyjastúlkur stóðu eftir tómhentar eftir hörkuleik. vísir/valli
Fylkir nældi í tvö mikilvæg stig í Olís-deild kvenna í kvöld og það í Vestmannaeyjum.

Fylkir lenti þá í hörkurimmu gegn ÍBV. Fylkir leiddi í hálfleik, 14-17, en mikil spenna var í síðari hálfleik. Ekkert var skorað síðustu mínútuna og Fylkir fagnaði.

Patricia Szölösi og Ester Óskarsdóttir voru nánast í skotkeppni í leiknum og Patricia vann.

Úrslit:

ÍBV-Fylkir  33-34

Mörk ÍBV: Ester Óskarsdóttir 10, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 7, Díana Dögg Magnúsdóttir 5, Telma Amado 4, Vera Lopes 3, Drífa Þorvaldsdóttir 3, Elín Anna Baldursdóttir 1.

Mörk Fylkis: Patricia Szölösi 13, Thea Imani Sturludóttir 8, Hildur Björnsdóttir 5, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir 4, Hafdís Shuzuka Iura 3, Kristjana Björk Steinarsdóttir 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×