Enski boltinn

Stórleikur í kvöld: Fær Gylfi tækifærið?

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gylfi Þór brosir til stuðningsmanna Everton.
Gylfi Þór brosir til stuðningsmanna Everton. Vísir/Getty
Líklegt er að Gylfi Þór Sigurðsson verði í leikmannahópi Everton þegar liðið mætir Mancheser City í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst klukkan 19.00.

Gylfi æfði með sínu nýja félagi um helgina en Ronald Koeman, stjóri Everton, hafði ekki áhyggjur af því að Gylfi hafði lengst af ekki spilað með Swansea á undirbúningstímabilinu.

„Hann fær mínútur í næstu viku,“ sagði hann þá. „Þetta er erfið vika og hann mun fá hlutverk í öllum þremur leikjunum okkar.“

Everton mætir Hajduk Split á útivelli í Evrópudeild UEFA á fimmtudag en fyrri leik liðanna lauk með 2-0 sigri Everton.

Hér fyrir neðan má sjá upphitunarmyndband fyrir leikinn í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×