Handbolti

Stórleikur Árna Þórs dugði ekki til

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Árni Þór Sigtryggsson.
Árni Þór Sigtryggsson. vísir/stefán
Þrátt fyrir frábæran leik Árna Þórs Sigtryggsonar fyrir EHV Aue þá náði liðið ekki að fá stig gegn TuSEM Essen í kvöld.

Árni leiddi frábæra endurkomu Aue undir lokin. Liðið var þrem mörkum undir, náði að jafna en tapaði að lokum með einu marki, 26-25.

Sigurmarkið kom á síðustu sekúndu leiksins.

Árni Þór var langmarkahæstur á vellinum með níu mörk. Bjarki Már Gunnarsson komst ekki á blað hjá Aue sem er í fjórða sæti þýsku B-deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×