Lífið

Stórleikarar grínast fyrir Emmy-hátíðina

Baldvin Þormóðsson skrifar
Julia Louis-Dreyfus fékk Emmy-verðlaun fyrir leik sinn í Seinfeld.
Julia Louis-Dreyfus fékk Emmy-verðlaun fyrir leik sinn í Seinfeld.
Leikkonan Julia Louis-Dreyfus slær heldur betur í gegn í nýjasta myndskeiði sem birt er til þess að vekja athygli á Emmy-hátíðinni sem styttist óðum í.

Í myndskeiðinu má sjá Louis-Dreyfus heimsækja veðlánabúð þar sem hún hyggst selja Emmy verðlaunin sín sem hún vann fyrir Seinfeld þættina.

Í búðina má sjá tvo aðra stórleikara, Bryan Cranston og Aaron Paul  sem gerðu garðinn frægan með Breaking Bad-þáttunum en þeir leika skítuga veðsetjara sem ætla sér að svindla á leikkonunni.

Óvæntir atburðir gerast svo þegar leikkonan gleymir lyklunum sínum inn í búðinni en myndbandið má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×