Fótbolti

Stórkostlegt mark Rúriks Gíslasonar | Myndband

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Rúrik Gíslason er í landsliðshópi Íslands fyrir leikina gegn Kýpur og Noregi.
Rúrik Gíslason er í landsliðshópi Íslands fyrir leikina gegn Kýpur og Noregi. Nordicphotos/Getty
Landsliðsmaðurinn Rúrik Gíslason skoraði fyrra mark FC Kaupmannahafnar í 2-1 sigri á SönderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í dag.

Mark Rúriks kom á 29. mínútu. Kantmaðurinn fékk þá boltann utan teigs og lét vaða með hægri fæti með þvílíkum krafti að markvörður gestanna gerði ekki einu sinni tilraun til að verja.

Sigurinn var kærkominn eftir erfitt gengi stórliðsins frá Kaupmannahöfn framan af leiktíð.

Markið glæsilega má sjá á vef danska ríkissjónvarpsins með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×