Bíó og sjónvarp

Stóri skjálfti verður að kvikmynd

Samúel Karl Ólason skrifar
Auður Jónsdóttir rithöfundur, Tinna Hrafnsdóttir hjá Freyju Filmwork og Valgerður Benediktsdóttir hjá Réttindastofu Forlagsins.
Auður Jónsdóttir rithöfundur, Tinna Hrafnsdóttir hjá Freyju Filmwork og Valgerður Benediktsdóttir hjá Réttindastofu Forlagsins.
Auður Jónsdóttir, Tinna Hrafnsdóttir og Valgerður Benediktsdóttir skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um gerð kvikmyndar upp úr metsölubók Auðar, Stóra skjálfta. Fyrirtæki Tinnu, Freyja Filmwork, mun framleiða myndina.

Í tilkynningu kemur fram að Stóri skjálfti kom út hjá Máli og menningu fyrir síðustu jól. Hún var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og hlaut hún Íslensku bóksalaverðlaunin og tilnefningu til Menningarverðlauna DV.

„Ég er verulega ánægð og þakklát fyrir traustið. Þetta er gríðarlega sterk og áhrifamikil saga og margt við efnistök höfundar sem er mjög spennandi fyrir kvikmyndamiðilinn. Að fá Margréti Örnólfsdóttur til liðs við okkur er líka mikill fengur,“ segir Tinna.

Margrét Örnólfsdóttir verðu annar tveggja handritshöfunda myndarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×