Sport

Stóri sigurinn er að tveir buðu sig fram

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Einar Vilhjálmsson.
Einar Vilhjálmsson. mynd/vísir
Einar Vilhjálmsson, Íslandsmethafi í spjótkasti og þrefaldur Ólympíufari, var í gær kosinn formaður Frjálsíþróttasambandsins á þingi þess á Akureyri, en hann hafði betur í baráttunni við fráfarandi varaformann, Benóný Jónsson, með 35 atkvæðum á móti 26. Ekki er langt síðan Einar ákvað að bjóða sig fram.

„Það gerðist bara á útmánuðum í vor að sitjandi formaður ákvað að gefa ekki kost á sér. Þá opnaðist umræða um hverjir væru tilbúnir að ljá hreyfingunni krafta sína næstu tvö árin og ég var í þeirri stöðu að geta látið mig málaflokkinn varða og tekið áskorunum varðandi hann,“ sagði Einar við Fréttablaðið í gær.

Ekki var um hatramman kosningaslag að ræða. „Ég fór ekki fram gegn einum né neinum. Stóri sigurinn var sá að tveir menn voru tilbúnir til þess að ljá hreyfingunni aðstoð sína. Ég sagði í ræðu minni á þinginu að ef Benóný yrði kosinn færi þar fram mjög góður formaður.“

Einar hefur marga fjöruna sopið þegar kemur að frjálsum íþróttum og hefur nokkuð skýra sýn á hvað hann vill bæta og breyta.

„Ég bauð mig fram til að vinna að útbreiðslu og vexti íþróttarinnar á landsvísu. Ég vil líka hlúa að afreksstefnunni enn frekar og auka samtal milli þjálfara og hreyfingarinnar með jöfnuð fyrir alla að leiðarljósi. Ég steig einnig fram í vor og átti stóran þátt í hugmyndinni „Frímínútur“ sem miðar að því að virkja krakka í leik í löngu frímínútunum í skólum landsins.“

„Svo eru það eldri borgararnir en hvað varðar öldungaþáttinn blasa við spennandi verkefni. Ég vil opna og leyfa fleirum að njóta þessa góða starfs sem FRÍ hefur unnið. Þróun og útvíkkun á fjármagnsleiðum er líka sannarlega mjög aðkallandi. Ég ætla samt ekki að segjast ætla að gera hitt og þetta því allt kostar peninga,“ segir Einar sem er spenntur fyrir verkefninu.

„Aldrei áður höfum við átt jafnglæsilegan mannauð ungmenna og ég lít á það sem mitt verkefni að koma á auknum verkefnum fyrir hreyfinguna og búa til þjálfarateymi sem hjálpast að,“ segir Einar Vilhjálmsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×