Enski boltinn

Stórglæsilegt mark Gylfa skildi á milli | Sjáðu markið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gylfi Þór fagnar stórkostlegu marki sínu.
Gylfi Þór fagnar stórkostlegu marki sínu. vísir/getty
Gylfi Þór Sigurðsson tryggði Swansea stigin þrjú gegn Aston Villa með glæsilegu marki í fyrri hálfleik í leik liðanna á Liberty Stadium í dag. Myndband af markinu má sjá hér að neðan.

Markið kom á 13. mínútu, en Gylfi skoraði þá föstu skoti beint úr aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig. Þetta var þriðja deildarmark Gylfa í vetur og annað markið sem hann skorar beint úr aukaspyrnu.

Þetta reyndist eina mark leiksins og Swansea fagnaði mikilvægum sigri sem skilar liðinu upp í 7. sæti úrvalsdeildarinnar með 28 stig. Aston Villa er hins vegar í 13. sæti með 20 stig.

Gylfi fór af velli á 78. mínútu, en Swansea mætir Liverpool í næsta leik sínum á mánudaginn.

Gylfi Sig kemur Swansea í 1-0 með glæsilegu marki:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×