Lífið

Stórbrotnar golfmyndir Stebba Hilmars

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stefán Hilmarsson hefur náð mögnuðum myndum á golfvellinum í sumar.
Stefán Hilmarsson hefur náð mögnuðum myndum á golfvellinum í sumar. vísir/stefán
„Ég tek stundum myndir á vellinum, einkum ef veður er gott og skýjafar fallegt,“ segir söngvarinn Stefán Hilmarsson, sem hefur stundað það í sumar að taka ótrúlega fallegar myndir á miðjum golfhring.

„Ég smelli af með símanum á milli högga. Ef ég er í stuði og hef smá tíma á teig, þá leik ég mér kannski aðeins með myndirnar með fulltingi tækninnar.“

Stefán er nokkuð sprækur golfari en greinilega enn betri ljósmyndari. Hér að neðan má sjá þessar ótrúlegu ljósmyndir sem söngvari Sálarinnar hefur náð í sumar.

Með myndunum má lesa það sem Stefán skrifaði á Facebook þegar hann deildi myndunum.

Esjan 30. ágúst: „Tók þátt í golfmóti VITA-ferða í Mosó í dag. Þar er einkar fallegt útsýni, sér í lagi þegar skýin varpa skuggamyndum á Esjuna.“Vísir/stefán
Grafarholt 23. júlí: „Kvöldsólin baðar 12. flöt Grafarholtsvallar í kvöld. Kylfingar tveir búa sig undir pútt, sá þriðji beygir sig eftir knetti sínum, býsna beygður eftir nokkrar raunir á brautinni. Gleðin fangaði hann þó fljótt aftur og hafði sá sigur þegar upp var staðið. #WinSomeLoseSome“Vísir/stefán
Korpúlfsstaðir 27. ágúst: „Frábær dagur við Korpúlfsstaði. Oft hefur maður hugsað út í stórhug Thors Jensen, sem lét reisa þetta mikla hús undir kúabú á sínum tíma, þegar flest híbýli hérlendis voru hóflegri að gerð, svo ekki sé meira sagt. Jörðina keypti Thor af öðru mikilmenni, Einari Benediktssyni. Á unglingsárum vann ég nokkur sumur í Gufuneskirkjugarði, spölkorn frá. Oft var mér þá starsýnt á Korpúlfsstaði og fannst mikið til koma, en mig minnir að þá hafi þar ekki verið mikil starfsemi, ef nokkur. Reyndar var þetta nánast eina húsið sem sjáanlegt var úr garðinum, sem nú er í miðri byggð. Lokasumarið mitt í Gufunesi lærði ég á bíl og lét kennarinn mig jafnan rúnta til og frá Korpúlfsstöðum til að þjálfa mig í malarvegaakstri. Nú er spilað golf á túnum Thors. Ólíklegt er að hann hafi séð það fyrir.“Vísir/stefán
Mosfellsbær 18. júlí, Hlíðarvöllur: „Það er vel þolanlegt að bíða aðeins á teig í svona veðri og með þetta útsýni.“Vísir/Stefán
Myndir úr Heiðmörk 3. ágúst: „Það var ljúft að vakna ferskur og fjallhress í morgun og bruna í golf. Hinn glæsilegi Urriðavöllur við Heiðmörk skartar nú sínu fegursta, einhver fallegasti völlur í N-Evrópu. Sá er þó sýnd veiði, en ekki gefin, einatt mikil áskorun, með löngum par 4-brautum og leikhættum hvarvetna utan brauta. Enda var þetta barátta. En ánægjulegt sem endranær.“
Önnur mynd úr Heiðmörk. Golfvöllurinn Oddur í útjaðri Heiðmerkur.vísir/stefán





Fleiri fréttir

Sjá meira


×