Lífið

Stórbrotin innkoma Will Smith í þætti hjá Jimmy Fallon

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Hvar nálgast maður svona einhyrning?
Hvar nálgast maður svona einhyrning? Vísir/Skjáskot
Will Smith var gestur Jimmy Fallon í The Tonight Show í gær til að kynna stórmyndina Suicide Squad sem kemur út á næstu dögum.

Eitthvað var ferski prinsinn frá Bel-Air óánægður með innkomuna sína í þættinum og ákvað að reyna aftur. Það tók hann reyndar nokkrar tilraunir að lenda hinni fullkomnu innkomu. 

Rauður dregill, einhyrningur, diskódansarar og gospelkór ættu náttúrulega að vera staðlaður búnaður þegar menn eins og Will Smith eiga í hlut.

Þetta stórkostlega myndband má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×