Lífið

Stóra leðurbuxnamálið: Borgarstjóra standa til boða buxur sem kepptu í Eurovision

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Ross Geller úr sjónvarsþáttunum Friends tengist fréttinni ekki beint.
Ross Geller úr sjónvarsþáttunum Friends tengist fréttinni ekki beint. Vísir
Stefán Þór Steindórsson, byggingafræðingur og gítarleikari, hefur boðið Degi B. Eggertssyni borgarstjóra afnot af leðurbuxunum sínum. Sem kunnugt er, hét Dagur því að mæta í leðurbuxum til vinnu, færu Svíar með sigur af hólmi í úrslitakeppni Eurovision.

Hinn sænski Måns Zelmerlöv, sem klæddist einmitt leðurbuxum á sviðinu og vakti mikla athygli fyrir, vann keppnina með laginu Heroes og hefur Dagur lýst því yfir að hann muni standa við heitið. Hann auglýsti eftir leðurbuxum í réttri stærð á Twitter eftir keppni.

Þónokkrir hafa boðið slíkan grip fram á Twitter, meðal þeirra Rúnar Freyr Gíslason leikari, sem klæddist slíkri flík þegar hann fór með aðalhlutverkið í söngleiknum Grease fyrir nokkrum árum. Leðurbuxurnar sem Stefán Þór býður fram hafa þó ákveðna sérstöðu, þær hafa nefnilega „keppt“ í Eurovision.

„Þetta eru buxur sem ég var í í keppninni 2007,“ segir Stefán Þór. „Þær eru með reynslu.“

Stefán lék á gítar í laginu Valentine Lost, sem Eiríkur Hauksson flutti fyrir hönd Íslendinga í Finnlandi árið 2007. Það lag var einmitt síðasta framlag Íslendinga sem komst ekki áfram úr undankeppninni þar til nú í ár.

„Það gekk jafn vel eða illa,“ segir Stefán. „Evrópa var ekki tilbúin í þetta.“

Til hamingju Svíar. Og María og þið öll hin, þetta var mjög til sóma fannst mér. Notaði helgina í tiltekt. Geymslan ...

Posted by Bjarni Benediktsson on 24. maí 2015
Stefán segist vilja athuga hvort Dagur geti fært gleði í leðurbuxurnar, þrátt fyrir að þær hafi gengið í gegnum mikil vonbrigði á sínum tíma. Hann sendi Degi skilaboð á Twitter, sem borgarstjórinn hefur smellt á „favourite“ við. En eru buxurnar mikið notaðar?

„Rosalega lítið,“ svarar Stefán. „Þetta eru sparibuxur. Þær eru notaðar við sérstök tækifæri.“


Tengdar fréttir

Dagur í leðurbuxur sigri Svíar

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri heitir því að mæta í leðurbuxum í vinnuna, sigri Svíar í Eurovision.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×