Lífið

Stór tilkynning frá Secret Solstice í dag

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tilkynnt verður um listamennina klukkan 16:30.
Tilkynnt verður um listamennina klukkan 16:30. vísir/hanna
Tónlistarhátíðin Secret Solstice fer fram í Laugardalnum 15.-18. júní á næsta ári. Undanfarin ár hafa heimsfrægir listamenn komið fram á hátíðinni en í dag tilkynna forsvarsmenn hátíðarinnar nokkra mjög þekkta listamenn sem stíga á sviðið í sumar.

Sérstakt tilkynningapartý verður því haldið í nýju 66°NORÐUR versluninni við Laugaveg 17. Dagskráin hefst klukkan 16:30 og stendur yfir í tvær klukkustundir.

Á Facebook-síðu Secret Solstice segir að um sé að ræða stærstu tilkynninguna í sögu hátíðarinnar. Nokkrir tónlistarmenn koma fram á Laugarveginum í dag og má þar nefna GKR, Soffía Björg, og Captain Syrup.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×