Viðskipti innlent

Stór íshellir settur upp í Perlunni næsta sumar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Maria Piacente Lord og Hringur Hafsteinsson taka þátt í því að setja sýninguna upp.
Maria Piacente Lord og Hringur Hafsteinsson taka þátt í því að setja sýninguna upp. vísir/vilhelm
„Það skiptir okkur mjög miklu máli að þessi sýning hafi vísindalegan trúverðugleika. Þess vegna erum við með vísindaráðgjafaráð sem er skipað bestu vísindamönnum frá Háskóla Íslands og víðar að. Þeir veita okkur ráðgjöf og taka þátt í að þróa sýninguna þannig að við höfum vísindalegan trúverðugleika og að gestir sýningarinnar geti treyst því sem þeim er sagt á sýningunni,“ segir Maria Piacente Lord, aðstoðarforstjóri LORD Cultural Resources. Það er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í að setja upp söfn og sýningar.

Fyrirtækið vinnur að því, ásamt margmiðlunarfyrirtækinu Gagarín, að setja upp náttúrusýningu í Perlunni fyrir einkahlutafélagið Perlu norðursins, sem mun reka sýninguna. Ráðgert er að fyrsti hluti sýningarinnar, jöklasýningin, verði opnuð næsta sumar. Þar verður 70 metra langur manngerður íshellir.

Síðar meir verður búinn til náttúrulegur íshellir sem verður gerður með aðstoð sérfræðinga frá Svíþjóð og Hollandi, sem hafa unnið á íshótelum í Lapplandi. Á annarri hæð verður margmiðlunarsýning.

„Það má kannski líta á þetta sem einhvers konar anddyri að landinu. Þarna á að vera mjög öflugur þverskurður af því sem hægt er að bjóða á landinu öllu,“ segir Hringur Hafsteinsson, listrænn stjórnandi hjá Gagarín.

Agnes Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Perlu norðursins, segir að sýningin verði stærsta afþreying á Íslandi og fjárfestingin verði sú mesta í afþreyingu hér á landi hingað til. Fjárfesting í sýningartækjum verði 1,5 milljarðar króna, en heildarfjárfesting með framkvæmdum í húsinu verði um þrír milljarðar. Agnes bendir á að Perlan sé orðin 25 ára gömul og lítið hafi verið gert fyrir húsið á þeim tíma. Hún segir að auk sýningarinnar verði rekinn veitingastaður og kaffihús á vegum Kaffitárs.

Perlan hefur verið lokuð gestum síðustu daga á meðan þeir rekstraraðilar sem hafa verið í húsinu tæma það. Nýir rekstraraðilar munu taka við lyklavöldum 12. janúar og ætla að opna þá fljótlega. Agnes Gunnarsdóttir segir að strax í janúar byrji rekstraraðilar að vera með móttöku fyrir Íslendinga og ferðaþjónustu­aðila þar sem þeir geti fengið kynningu á verkefninu. Slík kynning verði hálfsmánaðarlega.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×