Lífið

Stór ákvörðun að stíga fram

Marín Manda skrifar
Hafdís Huld Þrastardóttir tónlistarkona hefur ekki látið mikið á sér bera í tónlistinni eftir að hún varð móðir en ákvað að koma fram fyrir skömmu og segja frá erfiðri reynslu þegar hún varð fyrir hrottalegu neteinelti. Lífið ræddi við Hafdísi Huld um  móðurhlutverkið, nýju plötuna og hugrekkið sem þarf til þess að opna munninn og segja frá.

Hafdís Huld Þrastardóttir tónlistarkona varð móðir fyrir tæplega tveimur árum þegar dóttirin Arabella fæddist á sjálfan lýðveldisdaginn. Hún hafði hugsað sér að taka sér hálfs árs frí frá tónlistarferlinum og njóta þess að eiga gæðastundir með dótturinni og unnustanum í bleika húsinu þeirra í Mosfellsdalnum.

Plönunum um að ferðast um heiminn með barnið og sinna ferlinum var hins vegar frestað örlítið lengur en áætlað var. Dóttirin reyndist óvenju óvær og grét linnulaust upp undir 18 tíma á dag í rúmlega ár. Til þess að geta sinnt móðurhlutverkinu heils hugar tók Hafdís Huld þá ákvörðun að fresta útgáfu sinnar þriðju plötu og öllu tónleikahaldi um eitt og hálft ár. 

Nú er öllu léttara yfir þeim mæðgum og ekki er að sjá að Hafdís Huld hafi sofið lítið síðan hún varð móðir. Framundan er tónleikaferðalag til Bretlands með litlu fjölskylduna að kynna nýju plötuna sem loksins kemur á heimsmarkað í næsta mánuði og heitir Home.

„Plötufyrirtækin hefðu getað hent mér og mínum samningum í sjóinn því að þessi plata átti að koma út í febrúar árið 2013 en kemur út núna 5. maí 2014. Sem er auðvitað ansi mikil frestun. Það getur enginn útskýrt það fyrir manni hvernig það er að verða foreldri, allt í einu verður svo auðvelt að forgangsraða.

Fyrst þegar ég stóð frammi fyrir því að fresta plötunni um ár var mér mjög umhugað um að allir væru sáttir, bæði breska og bandaríska plötufyrirtækið. En svo þegar Arabella var svona mikið veik þá breyttust allar áherslur og ég var farin að hugsa að ef ég gæti ekki gert tónlist aftur þá skipti það ekki öllu máli. Auðvitað væri það leiðinlegt en í stóra samhenginu er þetta ekkert val, ef hún þarf á mér að halda þá er það bara þannig. Ég fékk reglulega gylliboð frá umboðsmanninum mínum og þegar hún var 8 mánaða var mér til dæmis boðið að koma til Indlands að taka upp vídeó en nei, ég hélt nú ekki, ég ætlaði að vera hér og skipta um þessa bleyju,“ segir hún hlæjandi.

Breyttist þegar hún varð mamma

„Ég sagði alltaf ég myndi ekki eignast barn fyrr en ég væri tilbúin að breyta öllu í lífi mínu til að sinna barninu og í dag er ég mjög þakklát fyrir að ég skuli hafa beðið með barneignir þangað til ferillinn var kominn á gott ról. Það var ákveðið öryggi í því að vera komin með útgáfusamning, umboðsmann og höfundarréttarfyrirtæki þegar þessar aðstæður komu upp.

En hefur áherslan í tónlistina breyst einnig á þessu tímabili? Já, hún hefur gert það, ég hef bara breyst sjálf heilmikið. Nýja platan hefur annan tón því líf mitt er allt öðru vísi í dag. Ég fékk mér bara hænur og hesta og fór að huga að lífrænu eggjunum mínum og var heima að baka. Áður fyrr var svo mikill hraði og ég var á stöðugum ferðalögum en þegar þú átt barn sem grætur allt að 18 tímum á sólahring slakar þú auðvitað á kröfunum og metur þann litla svefn sem þú færð.

Ég hef komið fram á tvennum tónleikum erlendis eftir að ég eignaðist Arabellu. Í sándtékkinu reif hún stöðugt í hárið á mér þar sem hún hékk á bakinu á mér í magapoka,“ segir Hafdís Huld og skellihlær. „Þá var allur glamúrinn gjörsamlega farinn sem gerir mann líka að einlægari listamanni þegar að það er enginn frontur lengur. Ég var bara heppin að hafa verið með maskara á báðum augunum áður en að tónleikarnir byrjuðu.” 

Hafdís Huld ásamt dótturinni Arabellu.
Pollýanna aldrei langt undan

Talið berst að fæðingarorlofi kvenna, fullkomnunaráráttu og samfélagsþrýstingi. 

„Það virðist margir að halda að þú sem kona sért bara á kaffihúsum allt fæðingarorlofið. Þegar Arabella var sex mánaða hafði ég ekkert farið með hana annað en til læknis eða til mömmu. Þú ferð ekki með barn, sem grætur út í eitt, í heimsókn. Fólki líður ekkert vel að fá svoleiðis heimsókn.

Við fórum með hana í allar rannsóknir en það fékkst engin niðurstaða. Hún var bara eitt af þessum börnum sem gráta. Við áttum bara að komast yfir fyrstu 3 mánuðina, en svo liðu sex, svo níu og upp úr 12 mánaða aldri minnkaði þetta mikið. Í dag er hún orðin hress, elskar tónlist og gengur um og segir Oh dear, oh dear með breskum hreim. Á heimilinu tölum við íslensku og ensku í bland svo það er æðislegt að hlusta á hana skipta á milli tungumálanna. 

Ég hef aldrei kynnst barni sem sefur í 8 tíma svo ef mín sefur í 3 tíma er ég bara glöð því það er svo miklu betra en 40 mínútur. Maður verður algjör Pollýanna af svona reynslu og ég verð bara að spila úr þessu eins vel og ég get,“ segir Hafdís Huld sem augljóslega hefur ákveðið að taka á erfiðleikunum með mikilli jákvæðni og jafnaðargeði. 

Elskar að vera í sveitinni.
Tilbúin í slaginn á ný

Hvernig heldurðu svo að það verði að fara með barnið í tónleikaferðalag, ertu kvíðin eða örlítið spennt? 

„Það verður eflaust svolítið öðruvísi en áður. Við fækkuðum tónleikunum úr 22 í 12 á einum mánuði og fáum bæði hjálp frá tengdaforeldrum mínum sem búa í Bretlandi og mömmu sem mun koma til okkar út. Mamma er sú sem hefur aðstoðað þegar við höfum verið að taka upp og mixa plötuna Home sem er frábært.

Reyndar voru mamma og pabbi og systir mín dugleg að ganga um með bleika vagninn til skiptis rétt eins og þau væri í boðhlaupi á meðan við Alisdair vorum í upptökum. Sem betur fer lærðum við maðurinn minn bæði útsendingar-og upptökustjórn og gátum tekið plötuna upp heima.“

Í sumar mun Hafdís Huld taka upp barnaplötu en nýja platan, Home, inniheldur lög sem eru meira í ætt við þjóðlagatónlist. 

„Ég var á góðum skriði þegar ég tók mér pásu en við erum með samninga við útgáfufyrirtæki út um allan heim og ég sem einnig tónlist fyrir sjónvarpsefni og kvikmyndir. Ég hef unnið með umboðsmanninum mínum síðan 2007 og ég hef þurft að sannfæra hana um ýmislegt í gegnum tíðina.

Fyrst vildi ég flytja heim og svo ætlaði ég í barneignarfrí en sem betur fer virðist hún fíla tónlistina mína það vel að hún sættir sig við allar þessar breytingar. Hún var því bara í símanum í rúmlega ár að fresta verkefnum fyrir mig. Þannig að hún er voðalega glöð að ég sé að byrja að spila á ný.”

Hafdís Huld og Alisdair á tónleikum.
Ber gamlan trúlofunarhring

Hafdís Huld kynntist unnusta sínum, Alisdair Wright, árið 2006 í gegnum tónlistina. Síðan þá hafa þau deilt lífinu saman og vinna tónlistina saman. Fjórum dögum eftir að dóttirin kom í heiminn bar hann upp bónorð og gaf henni fallegan ævagamlan trúlofunarhring sem langafi hans hafði gefið langömmu hans áður en hann lagði af stað í heimsstyrjöldina.

„Englendingurinn kann þetta því ég er heilluð af öllu gömlu. Stundum er maður heppinn og ég var rosalega heppin að finna hann. Við erum eins og svart og hvítt en við bara erum saman áreynslulaust,“ segir Hafdís Huld og brosir fallega. 

Plötuumslagið á plötunni Home.
Stór ákvörðun að stíga fram

Hafdís Huld var gestur í Kastljósi fyrir skömmu en þar sagði hún frá neteinelti í sinn garð af hendi femínistans Hildar Lilliendahl. Hafdís Huld kærði málið til lögreglunnar tveimur árum eftir að ummælin komu á netinu en þá var málið fyrnt. 

„Það hefur alltaf áhrif að einhver hugsi svona ljótt í þinn garð, sérstaklega þegar það er að ástæðulausu. Ég á ekki í útistöðum við neinn og er ekki þekkt fyrir að úthúða fólki eða tala illa um það. Ég er frekar prívat manneskja og líður bara vel í sveitinni. Það var því ansi sjokkerandi að sjá svona ljót skrif í minn garð frá manneskju sem ég hafði aldrei hitt,“ svarar hún þegar blaðamaður spyr út í ummæli Hildar Lilliendahl á spjallþráðum bland.is. 

„Fyrst ætlaði ég ekki að gera neitt og vildi helst ekki fara niður á þetta plan en aðgát skal höfð í nærveru sálar og mér fannst mikilvægt að bregðast við, því að svona framkoma á ekki að líðast í okkar samfélagi.“ 



Hafdís Huld Þrastardóttir
„Hver vill koma út að drepa“?

Hafdís Huld viðurkennir að hafa fundið fyrir hræðslu eftir að hafa verið gestur í Kastljósi þar sem hún þekkti ekkert til Hildar Lilliendahl og vissi ekki á hvaða viðbrögðum væri von frá henni. 

En hefur Hafdís Huld fengið persónulega afsökunarbeiðni frá konunni sem skrifaði meðal annars: „Hver vill koma út að drepa?“ og „Myndirðu nauðga Hafdísi Huld með tjaldhæl?“ „Nei, ég hef ekkert heyrt frá henni, en maðurinn hennar sendi mér skilaboð í gegnum vefsíðuna mína. Af minni hálfu er þessu máli lokið.

Ég vildi koma skömminni þangað sem hún átti heima og svo er það algjörlega hennar mál hvernig hún vinnur úr þessu. Fólk verður að vera heiðarlegt í baráttu sinni til þess að eyðileggja ekki góðan málstað.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×