Innlent

Stöngum stolið af bíl veiðimanna við Elliðaárnar

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Veiðimenn við Elliðaárnar eru uggandi um búnað sinn.
Veiðimenn við Elliðaárnar eru uggandi um búnað sinn. Fréttablaðið/GVA
Tveimur fluguveiðistöngum af dýru merki var stolið af bíl veiðimanns um hábjartan dag við Elliðaárnar.

Á Facebook-síðu um Elliðaárnar segir Viktor Guðmundsson veiðivörður frá því að tveimur Sage-stöngum hafi verið stolið af bíl við félagsheimili Rafveitunnar í Elliðaárdal síðdegis á fimmtudag.. „Elliðaárnefnd vill árétta það við veiðimenn að taka með sér aukastangir eða læsa þær inni í bíl,“ segir Viktor.

„Ég varð fyrir þessu í hittiðfyrra og það var þar sem fullt af fólki var að fylgjast með veiðum við gömlu Elliðaárbrúna,“ bætir veiðimaður við í athugasemd á Facebook-síðunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×