Fótbolti

Stoltur Freyr: Gæði, reynsla og þroski

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Freyr þakkar áhorfendum fyrir stuðninginn eftir leikinn.
Freyr þakkar áhorfendum fyrir stuðninginn eftir leikinn. Vísir/Anton
Ísland er komið á EM í Hollandi en það varð ljóst eftir úrslit dagsins í undankeppnini. Ísland trónir enn á toppi síns riðils í undankeppninni með fullt hús stiga og markatöluna 33-0 eftir 4-0 sigur á Slóveníu á Laugardalsvelli í kvöld.

„Við byrjuðum leikinn frábærlega og af krafti. Það kom að vísu kafli undir lok fyrri hálfleiks sem ég var ekki ánægður með en heilt yfir spiluðum við vel,“ sagði Freyr eftir leikinn í kvöld.

„Við stóðum vaktina og voru svo heppin í lokin,“ sagði hann og vísaði til þess er Slóvenía náði ekki að nýta dauðafæri fyrir nánast opnu marki í uppbótartíma.

Ísland er á toppi riðilsins með fullt hús stiga eftir sjö leiki og hefur ekki enn fengið á sig mark.

„Segir það ekki um okkur hversu góð við erum orðin og þroskuð. Það er auðvelt að gera mistök ef maður er ekki einbeittur en ég held að við búum yfir gæðum, reynslu og þroska auk þess sem að undirbúningur og umgjörð hefur verið góð. Allt helst þetta í hendur.“

Í leikmannahópi Íslands í dag voru fimmtán leikmenn sem voru á EM í Svíþjóð og níu sem fóru einnig á EM í Finnlandi fyrir sjö árum síðan.

„Það er ótrúlega dýrmætt að eiga leikmenn sem hafa gert þetta áður. Samt er þessi mikla löngun til staðar að fara aftur og gera betur. Það er það sem þær vilja gera. Ég held að það muni hjálpa okkur.“

Hann viðurkennir að hann sé nú þegar byrjaður að hugsa um EM næsta sumar.

„Það er ýmislegt sem ég þarf að skipuleggja í okkar undirbúningi sem hefst svo formlega í október þegar við fáum vináttulandsleiki.“

Ísland á samt einn leik eftir í undankeppninni og Freyr segir að það sé ansi freistandi að fara einnig í gegnum hann án þess að fá á sig mark.

„Það væri geðveikt að halda hreinu allt mótið. Við ætlum að hjálpast að við að ná því.“


Tengdar fréttir

Stelpurnar komnar á EM í Hollandi

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er komið á EM 2017 í Hollandi. Þetta var ljóst eftir 3-2 sigur Portúgals á Finnlandi í riðli 2 í undankeppninni í dag.

Hallbera: Búnar að vera með hausinn í Hollandi frá síðasta leik

Halbera Guðný Gísladóttir, bakvörður Íslands, átti mjög góðan leik þegar Íslands vann enn sigurinn í undankeppni EM, en það var ljóst fyrr í dag að liðið væri búið að tryggja sig inn á Evrópumótið sem fer fram í Hollandi næsta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×