Sport

Stolt af íslenskum íþróttakonum í ár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hrafnhildur Lúthersdóttir og Bryndís Rún Hansen settu saman sjö Íslandsmet á HM.
Hrafnhildur Lúthersdóttir og Bryndís Rún Hansen settu saman sjö Íslandsmet á HM. Mynd/Aðsend
Hrafnhildur Lúthersdóttir var enn á ný í fararbroddi íslenskra sundmanna á stórmóti á HM25 í Windsor í Kanada. Hún setti fimm Íslandsmet í þremur greinum og komst í þrjú undanúrslit.

„Ég er mjög sátt,“ segir Hrafnhildur Lúthersdóttir. Hún komst fyrst íslenskra kvenna í úrslit á Ólympíuleikum í ágúst. „Ég var að koma mér aftur í form eftir Ólympíuleikana. Ég tók mér gott frí og þetta var því skemmtilegur og góður árangur á fyrsta móti eftir Ólympíuleikana,“ segir Hrafnhildur.

„Ég var rosalega ánægð með árangurinn í Ríó en þurfti á fríi að halda enda búin að vera að æfa nær samfellt í fjögur ár,“ segir Hrafnhildur. Hún fagnar því sérstaklega að Ísland átti myndarlegan hóp á mótinu. Hún er elst og reyndust í hópnum og tók að sér „fyrirliðahlutverk.

„Við hefðum ekki getað staðið okkur betur. Það eru allir að bæta sig og allir að setja Íslandsmet því allar boðsundssveitirnar settu Íslandsmet. Ég er ótrúlega stolt af þeim. Við sögðum að af því að við erum með svona marga á HM í 25 metra laug þá verða að minnsta kosti átta á HM næsta sumar. Það verður að setja smá pressu á þessa krakka,“ segir Hrafnhildur í léttum tón.

„Ég er mjög ánægð með árið og gæti ekki beðið um meira,“ segir Hrafnhildur. Hún er að flytja heim eftir mörg ár í Bandaríkjunum þar sem hún var í skóla. „Ég verð bara að æfa með í SH og með vinnu hjá Iceland Travel. Ég er að reyna að gera eitthvað í lífinu því ég held að ég sé ekki með þennan atvinnumanna-persónuleika. Ég get ekki bara setið heima og bara verið að æfa,“ segir Hrafnhildur. Hún segist gera sér vonir um að vera kosin Íþróttamaður ársins.

„Ég veit að ég átti gott ár og er bæði stolt og ánægð með það. Það er rosalega erfitt val á hverju ári og margt gott íþróttafólk í boði. Ég er samt rosalega stolt af íslenskum íþróttakonum í ár. Konurnar eru að taka yfir og ég vona að það verði bara þrjár konur á toppnum í ár,“ sagði Hrafnhildur. 

Mynd/Aðsend



Fleiri fréttir

Sjá meira


×