Sport

Stökk fram af svölum á annarri hæð til að bjarga litla frænda sínum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Josh Shaw spilar líklega ekkert í ár.
Josh Shaw spilar líklega ekkert í ár. vísir/getty
Josh Shaw, bakvörður ruðningsliðs USC-háskólans í Bandaríkjunum, spilar líklega ekkert á tímabilinu vegna alvarlegra ökklameiðsla sem hann varð fyrir um helgina.

Shaw, sem er á fimmta ári og var kosinn fyrirliði liðsins af liðsfélögum sínum á laugardaginn, stóð úti á svölum á annarri hæð í fjölskylduboði seinna um kvöldið þegar hann sá sjö ára gamlan frænda sinn sem kann ekki að synda berjast við að halda sér á floti í sundlaug við húsið. ESPN.com greinir frá.

Hann stökk rakleiðis fram af svölunum og lenti á malbiki við sundlaugina og slasaðist alvarlega á ökkla. Þrátt fyrir það skreið hann ofan í laugina og kom frænda sínum til bjargar. Sjálfur náði hann svo að toga sig upp úr vatninu.

„Ég myndi gera þetta aftur fyrir hvaða barn sem er, ekki bara frænda minn. Mér líður mjög illa í ökklanum, en ég er heppinn að vera umkringdur bestu þjálfurum og læknum í heiminum. Vonandi get ég bara spilað sem fyrst,“ segir Shaw við ESPN.com.

Þetta er mikið áfall fyrir Shaw sem spilaði alla fjórtán leiki liðsins á síðasta ári og átti að vera lykilmaður í vörninni aftur á þessu ári. Nú er óvíst hvað verður um framtíð hans, sérstaklega hvað varðar NFL-deildina.

„Þetta var hetjulega gert hjá Josh. Svona maður er hann. Það er leiðinlegt að han verði frá og við munum sakna hans,“ segir Steve Sarkisian, þjálfari USC.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×