Enski boltinn

Stoke kaupir Allen

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Allen átti gott Evrópumót með Wales.
Allen átti gott Evrópumót með Wales. vísir/getty
Stoke City hefur fest kaup á velska miðjumanninum Joe Allen frá Liverpool.

Stoke greiddi 13 milljónir punda fyrir Allen sem skrifaði undir fimm ára samning við félagið.

Allen spilaði mjög vel á EM þar sem Wales kom öllum á óvart með því að komast í undanúrslit.

Allen, sem er 26 ára, fylgdi knattspyrnustjóranum Brendan Rodgers frá Swansea City til Liverpool 2012.

Allen lék 132 leiki fyrir Rauða herinn og skoraði sjö mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×