Viðskipti innlent

Stofnfjáreigendur vilja fá fund um stöðu SV

ingvar haraldsson skrifar
Stjórn Hagsmunafélags eldri stofnfjáreigenda í Sparisjóði Vestmannaeyja vill að stjórn Sparisjóðsins boði tafarlaust til fundar með stofnfjáreigendum sjóðsins.
Stjórn Hagsmunafélags eldri stofnfjáreigenda í Sparisjóði Vestmannaeyja vill að stjórn Sparisjóðsins boði tafarlaust til fundar með stofnfjáreigendum sjóðsins. vísir/óskar
Stjórn Hagsmunafélags eldri stofnfjáreigenda í Sparisjóði Vestmannaeyja vill að stjórn Sparisjóðsins boði tafarlaust til fundar með stofnfjáreigendum sjóðsins. Þar verði stofnfjáreigendur upplýstir um stöðu bankans. Eyjar.net greina frá.

Bréfið í heild sinni má lesa hér að neðan:

Í ljósi frétta af stöðu Sparisjóðs Vestmannaeyja sem við lásum á fréttamiðlum í dag vill stjórn Hagsmunasamtaka eldri stofnfjáreigenda í Sparisjóði Vestmannaeyja koma eftirfarandi á framfæri:

  • Ekki hefur enn verið kallað til fundar stofnfjáreiganda, þrátt fyrir að stjórn og stjórnendum Sparisjóðsins hafi verið kunnugt um stöðu Sparisjóðsins í nokkurn tíma.
  • Við eldri stofnfjáreigendur, sem lögðum Sparisjóðnum til stórfé til eflingar hans, hörmum að stofnfjáreigendur sitji ekki við sama borð varðandi upplýsingar um stöðu Sparisjóðsins.
  • Skv. áliti lögfræðings, sem er sérfræðingur í félagarétti, er meginregla félagaréttar um jafnræði hluthafa (í þessu tilviki stofnfjáreigenda) afdráttarlaus. Stjórninni ber að koma fram við alla stofnfjáreigendur með sama hætti. Af því leiðir að óeðlilegt er að stjórn sjóðsins miðli upplýsingum um fjárhagsstöðu hans til tiltekinna stofnfjáreigenda, en haldi upplýsingum frá öðrum, óháð eignarhluta.


Í ljósi ofanritaðs skorar stjórn Hagsmunafélags eldri stofnfjáreigenda í Sparisjóði Vestmannaeyja á stjórn Sparisjóðs Vestmannaeyja að boða tafarlaust til stofnfjáreigendafundar og virða þær reglur sem gilda og upplýsa alla stofnfjáreigendur um stöðu mála.

Stjórn hagsmunafélags eldri stofnfjáreigenda í Sparisjóði Vestmannaeyja



Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×