Viðskipti innlent

Stofnandi Þríhnúka kaupir Arion banka út

Ingvar Haraldsson skrifar
Þríhnúkagígur hefur verið eftirsóttur ferðamannastaður síðustu ár.
Þríhnúkagígur hefur verið eftirsóttur ferðamannastaður síðustu ár. fréttablaðið/vilhelm
Björn Ólafsson, einn stofnenda ferðaþjónustunnar við Þríhnúkagíg, hefur fengið samþykkt kauptilboð á 18,6 prósenta hlut Stefnis, dótturfélags Arion banka, í Þríhnúkum ehf.

Björn á fyrir 10,5 prósenta hlut í félaginu sem staðið hefur að undirbúningi fyrir hellaferðir í Þríhnúkagíg.

Í samþykktum Þríhnúka eru ákvæði um að félagið sjálft og hluthafar þessi fái forkaupsrétt að öllum hlutabréfum í félaginu áður en þau eru seld.

Reykjavíkurborg og Kópavogsbær sem bæði eiga 13,9 prósenta hlut í félaginu hyggjast ekki nýta sér forkaupsrétt sinn.

Bæjarlögmaður Kópavogs segir í umsögn sinni til bæjarráðs Kópavogs að vandséð sé að kaup á frekari eignarhlut í Þríhnúkum stæðust sveitarstjórnarlög þar sem fjárfesting hefði ekki sama samfélagslega gildi og hún hefði haft þegar bærinn keypti hlut í félaginu árið 2012.

Félagið standi nú tryggari fótum en þegar upprunalegu kaupin áttu sér stað.

Vika er þar til að forkaupsréttur hluthafa rennur út, að sögn Björns.

Björn Ólafsson
Annað félag, 3H Travel ehf. í eigu Björns og annarra stofnaðila Þríhnúka hefur séð um hellaferðir í Þríhnúkagíg þar sem hluthafar Þríhnúka vildu ekki taka þá fjárhagslegu áhættu sem fylgdi slíkri ferðaþjónustu.

Hins vegar sé markmiðið að Þríhnúkar fái varanlegt rekstrarleyfi fyrir hellaferðum og taki við rekstrinum. Þá verði farið í myndarlega uppbyggingu á svæðinu, að sögn Björns.

Síðustu áætlanir um uppbyggingu við Þríhnúkagíg hljóðuðu upp á fjárfestingu upp á um tvo milljarða króna. Hins vegar hafi það tafist þar sem svæðið sé á forræði margra aðila, að sögn Björns.

Hann segir svæðið heyra undir forsætisráðuneytið, Kópavogsbæ, Heilbrigðiseftirlit Kópavogs og Hafnarfjarðar auk Umhverfisstofnunar. Fyrst þurfi deiluskipulagslýsingu fyrir svæðið og í kjölfarið að auglýsa það til nýtingar.

Björn segir uppbygginguna hafa tekið mun lengri tíma en hann hafi haldið í upphafi.

„Þegar við stofnuðum þetta 2004 hélt ég kannski að það yrðu fimm ár, en nú eru að verða komin tólf ár,“ segir hann.

3H Travel bauð upp á hellaferðir í fjórða sinn í sumar en Björn segir reksturinn hafa verið viðunandi. Félagið hagnaðist um 8,3 milljónir króna bæði árin 2013 og 2014 samkvæmt ársreikningum þess.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×