Lífið

Stofnaði dægurlagahóp heima

Freyr Bjarnason skrifar
Fólk á öllum aldri er hluti af dægurlagahópnum Serious Singers.
Fólk á öllum aldri er hluti af dægurlagahópnum Serious Singers.
Guðný Arnþórsdóttir tók sig til og stofnaði dægurlagahópinn Serious-singers í haust.

Hópurinn hittist fyrst heima hjá henni en núna fara æfingarnar fram að Árskógum 4 á sunnudagskvöldum klukkan 20 undir stjórn Kára Friðrikssonar.

Fólk á öllum aldri er hluti af Serious-singers og Guðný segir fleira fólk velkomið. „Það þarf ekki að lesa nótur heldur bara mæta með röddina sína og smá jákvæðni,“ segir hún.

Fyrstu tónleikar hópsins voru á Lionskvöldi í Víkingsheimilinu við góðar undirtektir.

Framundan eru jólatónleikar og eru æfingar fyrir þá í fullum gangi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×