Innlent

Stofna fagráð til að efla lestrarfærni

Stefán Ó. Jónsson skrifar
VÍSIR/GETTY
Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum 20. ágúst að setja á fót fagráð um leiðir til að efla lestrarfærni og lesskilning barna og ungmenna í skólum borgarinnar.

Ráðið, sem skipað verður fræðimönnum og fagfólki, mun taka mið af því markmiði í samstarfssáttmála nýs meirihluta borgarstjórnar, að allur þorri barna í Reykjavík geti lesið sér til gagns á fyrstu árum grunnskólans.

Hlutverk ráðsins verður að móta tillögur um hvernig megi efla lestrarfærni og lesskilning meðal reykvískra grunnskólanemenda, sem og málþroska, hljóðkerfisvitund og læsi barna í leikskólum borgarinnar, er fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Jafnframt á það að endurskoða fyrirkomulag lesskimunar í skólum borgarinnar og leggja fram tillögur til úrbóta.

Lögð verði áhersla á aðgerðir til að styðja við bakið á þeim nemendum sem þurfa á sérstakri aðstoð að halda í lestrarnáminu. Þá er fagráðinu ætlað að benda á árangursríkar aðferðir í lestrarkennslu og námi, sem studdar eru fræðilegum rökum.

Formaður ráðsins verður dr. Freyja Birgisdóttir, dósent við menntavísindasvið HÍ.

Fagráðið á að skila tillögum sínum fyrir 1. febrúar 2015.

Í fundargerð skóla- og frístundaráðs kemur meðal annars fram að lesskimunin Læsi hafi verið lögð fyrir nemendur í 2. bekkjum í grunnskólum Reykjavíkur í apríl ár hvert frá árinu 2002. Besti árangur sem hefur náðst í skimuninni var vorið 2011 en þá gátu 71 prósent þeirra sem tóku þátt lesið sér til gagns samkvæmt þeim viðmiðum sem sett hafa verið.

Vorið 2013 var hlutfallið 63 prósent en vorið 2014 kom í ljós að 66 prósent nemenda í 2. bekk virtust geta lesið sér til gagns. Niðurstöður PISA-rannsóknarinnar sem gerð var vorið 2012 bendi einnig til þess að þörf sé á samstilltu átaki fræðsluyfirvalda og skóla við að endurmeta vinnubrögð og áherslur varðandi lesskilning, náttúrulæsi og stærðfræðilæsi. 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×