Skoðun

Stöðvum stríðsnauðganir

Stuart Gill skrifar
Beiting kynferðisofbeldis í stríði er meðal alvarlegustu mannréttindabrota sem eiga sér stað á okkar dögum. Það er erfitt að skjalfesta sannanir um það og enn erfiðara að rannsaka það. Fremjendur slíkra brota eira engu, því þetta snýst ekki um kynlíf heldur ofbeldi, drottnun og að útbreiða ótta og skelfingu. Það gengur ekki lengur að maður með byssu fyrirskipi eða fremji nauðgun og komist upp með það refsingarlaust vegna þess að glæpurinn var framinn í stríði. Rétt eins og þjóðir heims gátu komið sér saman um að úthýsa jarðsprengjum af vígvöllum mun heimsbyggðin nú verða að koma sér saman um að binda enda á beitingu kynferðisofbeldis í stríðsátökum.

Dagana tíunda til þrettánda júní munu breski utanríkisráðherrann William Hague og sérlegur erindreki SÞ, Angelina Jolie, verða gestgjafar alþjóðlegrar ráðstefnu sem markar hápunkt hnattrænnar herferðar sem helguð er þessu markmiði. Ráðstefnan ber yfirskriftina Global Summit to End Sexual Violence in Conflict. Hana munu sækja fulltrúar ríkisstjórna, borgarasamtaka, herja og dómskerfa mikils fjölda landa úr öllum heimsálfum. Fulltrúi íslenskra stjórnvalda verður Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra. Almenningi er líka boðið að taka virkan þátt. Úti um allan heim mun fólk sameinast um kröfuna um að nauðganir og kynferðisofbeldi verði fjarlægt úr vopnabúri grimmdarinnar.

Sá stuðningur sem Íslendingar hafa veitt þessari herferð er dýrmætur. Eftir hádegið í dag munu forsætisráðherra og fleiri ráðherrar úr ríkisstjórn Íslands, ásamt mörgu fleira fólki, standa með mér í Breska sendiráðinu að því að lýsa samstöðu þjóða okkar í baráttunni gegn kynferðisofbeldi í stríði.

Hver sá sem þetta les er líka hvattur til að taka þátt. Að lestri þessa greinarstúfs loknum hvet ég þig, lesandi góður, til að fara á Youtube og horfa þar á stuttmyndina Don‘t believe the thumbnail, this is the stuff for nightmares. Hún sýnir hrylling nauðgana og kynferðisofbeldis frá sjónarhóli barns á einu af ótal átakasvæðum heimsins. Ég er viss um að það mun breyta heimsmynd þinni að horfa á þessa mynd. Þú getur svo tekið þátt í umræðunni á samfélagsmiðlum undir #TimeToAct og fylgst með á Facebook- og Twitter-síðum sendiráðsins undir notandanafninu ukiniceland. Láttu orðið berast meðal vina og vandamanna, og legðu þitt af mörkum til að binda enda á þessa hroðalegu glæpi.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×