Lífið

Stöðvar ökumenn og gefur þeim jólagjafir

Bjarki Ármannsson skrifar
Nýjasta uppátæki Bigga löggu hefur vakið mikla lukku.
Nýjasta uppátæki Bigga löggu hefur vakið mikla lukku.
„Yfirleitt þegar löggan er að stoppa einhvern, er það út af einhverju veseni, því miður,“ segir Biggi lögga í upphafi nýjasta myndbands síns. „En ekki í dag, því það eru alveg að koma jól og við ætlum að hafa svolítið gaman núna.“

Uppátæki Bigga, sem deilt var á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kvöld, felst í því að stöðva ökumenn, að því er virðist af handahófi, og veita þeim óvæntan jólaglaðning. Meðal annars hljóta hinir heppnu skammta af gosi, húfur, DVD-diska og gjafakort í Bónus.

Eins og sést í myndbandinu sem fylgir með fréttinni vakti uppátækið mikla lukku hjá þeim ökumönnum sem Biggi stöðvaði.

„Ég held að mig sé að dreyma bara,“ sagði ein kona.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×