Körfubolti

Stöðva þurfti leik Þórs og Hauka vegna vatnsleka í gær

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Haukur Ásgeirsson í leik með Haukum á síðasta tímabili.
Haukur Ásgeirsson í leik með Haukum á síðasta tímabili. Vísir/Vilhelm
Flytja þurfti leik Þórs og Hauka í Lengjubikar karla í körfubolta í gær eftir aðeins einna mínútna leik vegna vatnsleka í Íþróttahöllinni á Akureyri en leikurinn fór fram í íþróttahúsi Síðuskóla.

Þetta kemur fram á heimasíðu Þórs en leiknum lauk með 18 stiga sigri Hauka. Var mikil rigning á Akureyri í gær og hélt þakið á höllinni einfaldlega ekki undan.

Haukar voru samkvæmt heimasíðunni alltaf skrefinu á undan í leiknum og leiddu með tólf stigum í hálfleik. Sást munurinn á milli deildanna skýrlega og var ekki hægt að segja annað en að sigurinn hafi verið verðskuldaður.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×