Körfubolti

Stöð 2 Sport sýnir báða oddaleikina

Menn gleðjast yfir því að fá báða leikina í beinni.
Menn gleðjast yfir því að fá báða leikina í beinni. vísir/vilhelm
Það verður sannkölluð körfuboltaveisla á Stöð 2 Sport á Skírdag.

Þá fara fram oddaleikirnir í átta liða úrslitum í úrslitakeppni Dominos-deildar karla. Báðir leikirnir verða í beinni á Stöð 2 Sport.

Leikur Hauka og Keflavíkur hefst klukkan 16.00 og seinni leikurinn á milli Njarðvíkur og Stjörnunnar hefst klukkan 19.15.

Körfuboltaáhugamenn geta farið að spenna beltin því páskarnir í ár byrja með látum á Stöð 2 Sport.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×