Lífið

Stöð 2 í gamla daga: Tanngómur í fyrsta skipti í sjónvarpi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sjónvarpskonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir hefur undanfarin misseri lagst yfir safn Stöðvar 2 og sett saman gömul innslög úr efni Stöðvarinnar. Innslögin eru núna sýnd í þættinum Íslandi í dag á fimmtudagskvöldum.

Þættir Eiríks Jónssonar á Stöð 2 vöktu iðulega bæði athygli og umtal – og það ekki að ástæðulausu.

Meðfylgjandi brot er úr svokölluðum „best of“ þætti frá því fyrir um 20 árum en í því sést hvar eldri kona tekur út úr sér tanngóminn, en það mun hafa verið í fyrsta skipti sem það var gert í íslensku sjónvarpi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×