Viðskipti erlent

Stjórnvöld í Rússlandi koma banka til hjálpar

Samúel Karl Ólason skrifar
Stuðningsmenn rússneska kommúnistaflokksins saga líkan af rúblu.
Stuðningsmenn rússneska kommúnistaflokksins saga líkan af rúblu. Vísir/AFP
Seðlabanki Rússlands tilkynnti í dag að hann hafi gripið inn í hjá bankanum Trust, sem hafi átt í vandræðum vegna verðhruns rúblunnar. Þetta er fyrsti bankinn sem lendir í vandræðum vegna núverandi efnahagsvandræða Rússlands.

Seðlabankinn mun afhenda Trust 30 milljarða rúbla, eða um 67 milljarða króna, svo bankinn fari ekki í gjaldþrot.

Á vef Sky News segir að Seðlabankinn hafi ekki staðfest að vandræði Trust væru rakin til vandræða rúblunnar. Trust var þó undir álagi áður en gjaldmiðillinn lenti í vandræðum vegna verðhruns olíu og viðskiptaþvingana vesturveldanna.

Trust verður nú undir stjórn Seðlabankans og leitað verður frekari lána.

Kínverjar til hjálpar

Utanríkisráðherra Kína sagði í morgun að Kínverjar væru tilbúnir að koma Rússum til hjálpar. Þó taldi hann að Rússar hefðu burði til að komast í gegnum þessi vandræði sjálfir. Þetta kemur fram á vef Business Insider.

Á þessu ári hefur rúblan lækkað um 45 prósent á móti dollaranum, en Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur ekki viljað segja að um neyðarástand sé að ræða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×