Stjórnvöld í Aserbaídsjan gagnrýnd fyrir einræði

Fréttablaðið Erlent 10. febrúar 2012 10:15
Íbúar á þessu svæði voru þvingaðir til að flytja út úr húsum sínum og þau síðan rifin.
Íbúar á þessu svæði voru þvingaðir til að flytja út úr húsum sínum og þau síðan rifin. nordicphotos/AFP
Mannréttindasamtökin Amnesty International segja andrúmsloft ótta og sjálfsritskoðunar ríkja í Aserbaídsjan. Mótmælahreyfing á síðasta ári var barin niður harðri hendi. Samkynhneigðum er hótað lífláti.

„Alþjóðasamfélagið hefur lítið gert til að sporna við þróun í átt að auknu einræði í landinu,“ segja mannréttindasamtökin Amnesty International um Aserbaídsjan, olíuríki í Kákasusfjöllum, þar sem til stendur að halda söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í vor.

Í lok síðasta árs sendu samtökin frá sér skýrslu um ástand mannréttindamála í Aserbaídsjan, þar sem greint er frá árásum stjórnvalda á mótmælendur frá því að mótmæli gegn spillingu og kúgun brutust út í landinu í mars á síðasta ári.

„Síðan þá hefur ungt baráttufólk og stjórnarandstæðingar verið sett í fangelsi að geðþótta yfirvalda, eða í kjölfar upploginna ásakana, en blaðamenn og baráttufólk fyrir mannréttindum hafa sætt hótunum og áreitni.“

Í þessu andrúmslofti virðast samkynhneigðir nú hafa hætt við áform um að halda gleðigöngu stuttu fyrir söngvakeppnina.

Samkynhneigðir hafa fengið líflátshótanir og tugir manna hafa skráð sig á Facebook-síðu, sem stofnuð hefur verið gegn áformum um að halda gleðigöngu samkynhneigðra í landinu.

Flestir íbúar landsins eru múslímar og hafa litla samúð með samkynhneigðum.

Stjórnvöld segja að öllum sé frjálst að sækja um leyfi fyrir útisamkomum, en reynslan er sú að erfitt hefur verið að fá samþykki fyrir slíku, ekki síst síðustu mánuði.

Þá skýrði breska útvarpið BBC nýverið frá því að fjöldi manns hefði verið þvingaður til að flytja af heimilum sínum, sem síðan voru rifin til að rýma fyrir nýrri tónlistarhöll, sem verður vettvangur söngvakeppninnar í maí.

„Borgaryfirvöld í Bakú hafa engan lagalegan rétt til að flytja fólk nauðungarflutningum og eyðileggja húsin þeirra,“ hefur BBC eftir Zohrab Ismayil, formanni mannréttindasamtaka í Aserbaídsjan.

„Eins og stendur þá eru mannréttindabrot hér í Aserbaídsjan daglegur viðburður og þetta er aðeins eitt málanna,“ sagði Ismayil.

Amnesty International segir að sautján samviskufangar sitji nú í fangelsi í Aserbaídsjan.

„Uppsöfnuð áhrif þessara aðgerða stjórnvalda, ásamt með langvarandi refsileysi þeirra, eru þau að í landinu ríkir andrúmsloft ótta og sjálfsritskoðunar sem grefur undan lýðræðisþróun í Aserbaídsjan,“ segir í tilkynningu frá Amnesty.gudsteinn@frettabladid.is

Fleiri fréttir - Erlent

Erlent 26. maí. 2012 12:52

Lagarde: Engin áform um að slaka á kröfum til Grikkja

Ekki verður slakað á kröfum til Grikkja varðandi niðurskurð, segir Christine Lagarde, fram...  

Meira
Erlent 26. maí. 2012 11:02

Handtöku Breiviks lýst

Norskir lögreglumenn báru vitni í máli Anders Behring Breivik í Osló í gær. Þeir lýstu því...  

Meira
Erlent 26. maí. 2012 11:00

Íranar geta sett saman kjarnorkusprengjur

Íranar hafa á síðastliðnum fimm árum auðgað það mikið úran að þeir geta nú sett saman um f...  

Meira
Erlent 26. maí. 2012 09:45

Blóðbað í Sýrlandi

Þjóðarráðið í Sýrlandi, stærstu samtök andspyrnumanna í landinu, hafa farið fram á að Öryg...  

Meira
Erlent 26. maí. 2012 09:16

Skotárás í Finnlandi - maðurinn handtekinn

Piltur og stúlka létu lífið í skotárás í finnsku borginni Hyvinkaa í nótt, þau voru bæði á...  

Meira
Erlent 26. maí. 2012 05:00

Andstæður mætast í seinni umferðinni

Mohammed Morsi, forsetaefni Bræðralags múslima keppir að öllum líkindum við Ahmed Shafik, ...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 23:00

Blaðamaður í kókaínsmygli

Blaðamaður í Kaupmannahöfn, sem skrifaði um fíkniefnaviðskipti, hefur verið dæmdur í sex á...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 21:40

Kattarkona í Ísrael tók að sér 550 ketti

Maður frá Ísrael sótti um skilnað frá eiginkonu sinni á dögunum. Slíkt þykir nú varla frét...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 23:00

Eitrað fyrir skólastúlkum

Eitrað var fyrir 120 skólastúlkum og þremur kennurum þeirra í skóla í Takhar í Afganistan ...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 21:14

Ótrúlegir hæfileikar hjá kisa

Kötturinn Óskar hefur heldur betur slegið í gegn á internetinu síðustu daga en hann er gæd...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 10:40

Bræ'ðralag múslima segist hafa forystu

Talning atkvæða er sumstaðar hafin í Egyptalandi en kosið var um nýjan forseta landsins í ...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 10:36

Þingmenn slógust í þingsal

Þingfundur í Úkraínu leystist upp í allsherjar áflogum í gær. Slagsmálin brutust út á mill...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 09:14

Getnaðarvarnarpilla fyrir karlmenn í sjónmáli

Vísindamenn eygja nú möguleika á því að þróa getnaðarvarnarpillu fyrir karlmenn. Genafræði...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 08:53

Mörgæs á flótta handsömuð í Tókíó

Yfirvöld í Japan hafa loksins handsamað mörgæs sem flúði úr sædýrasafni í Tókíó fyrir tvei...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 11:00

Ætlar ekki að áfrýja dómi

Noregur Anders Behring Breivik mun ekki áfrýja fangelsisdómi yfir sér ef hann verður úrsku...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 08:57

Hollande heimsækir Afganistan

Francois Hollande, nýkjörinn forseti Frakka mætti óvænt í heimsókn til Afganistan í morgun...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 08:00

Læknast hraðar og síður veikir

Karlkyns bavíanar sem eru í ráðandi stöðu í sínum hóp verða sjaldnar veikir og sár þeirra ...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 07:30

Pottur talinn brotinn í skráningu Facebook

Kærumál streyma inn vegna vandræðagangs við markaðsskráningu Facebook. Hafin er rannsókn á...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 05:30

Mannréttindabrot framin á báða bóga

Bæði stjórnarherinn og sveitir uppreisnarmanna stunda manndráp og pyntingar í Sýrlandi. Me...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 04:00

Áhyggjur af afdrifum fjölskyldu Chen

Eldri bróðir kínverska flóttamannsins Chen Guangcheng, Chen Guangfu, hefur flúið heimabæ s...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Erlent / Stjórnvöld í Aserbaídsjan gagnrýnd fyrir einræði