Bíó og sjónvarp

Stjörnustríð upp að hlið Hringadróttinssögu

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Safnarinn Rey er ein aðalsöguhetjan í The Force Awakens.
Safnarinn Rey er ein aðalsöguhetjan í The Force Awakens. mynd/disney
Nýjasta viðbót Star Wars seríunnar, The Force Awakens, var í dag tilnefnd til fimm Óskarsverðlauna. Tilnefningarnar fimm þýða að Stjörnustríðsmyndirnar hafa jafnað Hringadróttinssögu Peter Jackson yfir þær myndir sem hlotið hafa flestar Óskarstilnefningar, alls þrjátíu talsins. Þetta kemur fram á Mashable.

The Force Awakens var tilnefnd fyrir bestu tæknibrellur, bestu klippingu, bestu tónlist, bestu hljóðvinnslu og bestu hljóðblöndun.

Star Wars myndirnar hafa alls hlotið tíu verðlaun en það dugar ekki til að fara fram úr Hringadróttinssögu. Þriðja mynd þríleiksins hlaut ellefu Óskarsstyttur og jafnaði þar með met Ben-Hur og Titanic yfir fjölda verðlauna stakrar myndar á einni hátíð. Jedi riddararnir og andstæðingar þeirra hafa hins vegar hlotið tíu verðlaun og munar þar mestu um fyrstu myndina, A New Hope, sem hlaut ellefu tilnefningar og sjö verðlaun.

Sé litið til annarra mynda sem eiga sér stað í ævintýraheimi J.R.R. Toilken á sköpunarverk George Lucas enn langt í land því þríleikurinn um Hobbitann hlaut átta tilnefningar og ein verðlaun. Engar aðrar myndaseríur komast með tærnar þar sem áðurnefndar myndir hafa hælana. Harry Potter myndirnar voru tilnefndar tólf sinnum, leyniþjónustumaður hennar hátignar, James Bond, hefur verið tilnefndur fjórtán sinnum og Star Trek og Leðurblökumaðurinn hafa verið tilnefnd fimmtán sinnum.

Minnst tvær Stjörnustríðsmyndir eru væntanlegar og því verður að teljast líklegt að flokkurinn muni taka fram úr Hringadróttinssögu á endanum. Það er þó enn langt í að þær nái í skottið á John Williams, sem samdi einmitt tónlistina í öllum Star Wars myndunum, sem hefur verið tilnefndur alls fimmtíu sinnum.


Tengdar fréttir

Star Wars: Hver er Rey?

Spoiler viðvörun. Samansafn af kenningum og staðreyndum um aðalhetju nýju Star Wars myndanna.

Star Wars halar inn milljarð á tólf dögum

Nýjasta myndin í Star Wars sagnabálkinum hefur slegið enn eitt metið. Á sunnudag hafði myndin, sem er sú sjöunda í röðinni, halað inn einn milljarð bandaríkjadala.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×