Lífið

Stjörnurnar táruðust þegar Meryl Streep hélt tilfinningaþrungna ræðu á Golden Globe

Stefán Árni Pálsson skrifar
Söngleikjamyndin La La Land kom sá og sigraði á Golden Globes hátíðinni sem fram fór í nótt. Hún hlaut alls sjö verðlaun en engin önnur kvikmynd hefur unnið til eins margra verðlauna á hátíðinni. La La Land var tilnefnd til sjö verðlauna og hirti þau öll.

Golden Globes verðlaunahátíðin er jafnan talin mælistika á velgengni kvikmynda á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fer síðar á árinu.

The Crown var valin besta dramasjónvarpsþáttaröðin og Atlanta var valin besti gamanþátturinn. Meryl Streep fékk heiðursverðlaun á hátíðinni en í ræðu sinni gagnrýndi hún nýkjörinn forseta Bandaríkjanna, Donald Trump. Streep var raddlaus þegar hún hélt ræðuna og baðst hún afsökunar á því.

„Hollywood er troðfull af útlendingum og utanaðkomandi og ef við rekum þá alla í burtu þá verður ekkert til að horfa á nema fótbolti og blönduð bardagalist,“ sagði Streep sem gagnrýndi Trump harkalega í ræðunni. Streep var í raun í erfileikum með að flytja ræðuna, tilfinningarnar voru miklar. Hún sagði að leikarar hafi sýnt ótrúlega frammistöðu á síðasta ári en ein frammistaðan hafi verið betri en önnur.

„Það var ein frammistaða sem algjörlega greip mig heljartökum, ekki útaf því að hún var góð, heldur hún var raunveruleg og skilaði sínu. Þá sáum við fólk fólk hlægja og sína tennurnar. Það var þegar maðurinn sem sóttist eftir æðsta embætti Bandaríkjamanna gerði grín að fötluðum blaðamanni.“

Donald Trump varð fyrir mikilli gagnrýni eftir að hann hæddist að fötlun blaðamanns á kosningafundi undir lok ársins 2015. Það gerði hann þegar hann var að verja ummæli sín um að hafa séð þúsundir múslima fagna því í New Jersey þegar flugvélum var flogið á tvíburaturnana í New York árið 2001. Lögregluþjónar og yfirvöld í New Jersey segja þetta ekki vera satt.

„Þetta braut hjartað í mér og ég skil þetta í raun og veru ekki ennþá, því þetta var ekki í bíómynd. Þessi maður hefur í raun fengið leyfi til að niðurlægja og gera lítið úr fólki. Þegar svona valdamikill maður sýnir öðru fólki svona mikla vanvirðingu mun það bara hafa það í för með sér að fólk mun almennt sýna öðrum meiri vanvirðingu. Ofbeldi skapar einnig bara meira ofbeldi. Þegar þeir valdamiklu nota aðstöðu sína til að gera lítið úr öðrum töpum við öll.“

Streep sagði það mikilvægt að fjölmiðlar fengu frið og tækifæri til að sinna sínu hlutverk eins vel og mögulegt er.

„Við sem leikarar þurfum að minna hvort annað á að það eru forréttindi að fá að vinna sem leikarar en við þurfum einnig að minna okkur alltaf á það að sýna samkennd með öðrum og deila þeim boðskapi.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×