Glamour

Stjörnurnar skína skært í Cannes

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Kvikmyndahátíðin fræga í Cannes var sett í gærkvöldi með pompi og pragt, og auðvitað var rauða dreglinum rúllað út í franska strandbænum.

Stjörnurnar flykkjast á staðinn og það er gaman að skoða tískuna á öllum frumsýningum og blaðamannafundunum enda fatavalið aðeins líflegra en gengur og gerist enda sumarið komið í Cannes. 

Í gærkvöldi fór fram opnunarhátíðin þar sem meðal annars mátti sjá Victoriu Beckham í töffaralegum samfesting, Kristen Dunst (sem er í dómnefnd hátíðarinnar í ár) í blómakjól frá Gucci og leikkonuna Blake Lively sem geislaði í húðlituðum kjól frá Versace en hún er einmitt kominn nokkra mánuði á leið með sitt annað barn og var ófeimin að sýna bumbuna. 

Hér eru nokkrar af vel völdum stjörnum gærkvöldsins í Cannes. 

Blake Lively í kjól frá Atelier Versace.
Kristen Dunst í Gucci.
Kristen Stewart í Chanel.
Bella Hadid í Cavalli Couture.
Doutzen Kroes í Brandon Maxwell.
Victoria Beckham í samfesting úr eigin smiðju.
Julianne Moore í Givenchy Haute Couture.
Susan Saradon var töffari kvöldsins.





×