Bíó og sjónvarp

Stjörnurnar létu Donald Trump heyra það á SAG-verðlaunahátíðinni

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Leikarahópurinn úr Hidden Figures.
Leikarahópurinn úr Hidden Figures. vísir/epa
Stjörnurnar sendu skýr skilaboð til Trump á SAG-verðlaunahátíðinni

Stjörnurnar í Hollywood sendu skýr skilaboð til Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, á SAG-verðlaunahátíðinni sem fram fór í Los Angeles í gærkvöldi. Á hátíðinni eru veitt verðlaun fyrir besta leikinn bæði í sjónvarpi og kvikmyndum á árinu sem leið.

Óvænt í úrslit í gær féllu að nokkru leyti í skuggann af pólitískum yfirlýsingum verðlaunahafanna sem margir fordæmdu ferðabann sem Trump hefur sett á ríkisborgara frá sjö ríkjum þar sem múslimar eru í meirihluta.

Hidden Figures hreppti hnossið

Leikarahópurinn úr myndinni Hidden Figures var valinn sá besti en fyrirfram höfðu flestir spáð því að leikararnir úr Moonlight myndu vinna. Verðlaunin þykja gefa góða vísbendingu um hvaða mynd er vís til að hreppa hnossið sem besta mynd ársins á Óskarsverðlaunum en ellefu sinnum síðustu 21 ár hefur sama mynd unnið fyrir leikarahópinn á SAG og svo verið valinn besta myndin á Óskarnum.

Myndin La La Land sem hlaut flestar tilnefningar til Óskarsverðlauna í ár var ekki tilnefnd á SAG-hátíðinni en Hidden Figures keppir um bestu myndina á Óskarnum.  

Denzel Washington var valinn besti leikarinn fyrir hlutverk sitt í myndinni Fences og vann Casey Affleck sem margir höfðu spáð sigri en hann var tilnefndur fyrir hlutverk sitt í myndinni Manchester by the Sea. Þá fékk Emma Stone verðlaun fyrir hlutverk sitt í La La Land.

En eins og áður segir voru það skilaboð stjarnanna til forseta Bandaríkjanna sem vöktu ef til vill meiri athygli en það hverjir fengu verðlaun. Ashton Kutcher opnaði hátíðina og bauð áhorfendur velkomna sem og alla þá sem væru staddir á flugvöllum og ættum heima í hans Ameríku.

„Þið eruð partur af efninu sem við erum gerð úr. Við elskum ykkur og við bjóðum ykkur velkomin,“ sagði Kutcher.

Leikkonan Julia Louis-Dreyfus hlaut fyrstu verðlaun kvöldsins sem besta leikkonan fyrir hlutverk sitt í gamanþættinum Veep.

„Faðir minn flúði trúarofsóknir í Frakklandi þegar það var undir stjórn nasista,“ sagði Louis-Dreyfus í ræðu sinni.

„Ég er bandarískur föðurlandsvinur. Ég elska þetta land og af því að ég elska það þá hryllir mig við lýtum þess og þetta innflytjendabann er lýti og ekki í anda Bandaríkjanna,“ bætti hún við.

Leikarinn Mahershala Ali, sem er múslimi, var einnig með skilaboð til Trump þegar hann tók við verðlaunum fyrir besta leik í aukahlutverki karla en hann leikur í myndinni Moonlight. Ali tók upp íslam fyrir 17 árum en myndin fjallar um ungan, svartan mann sem elst upp við fátækt í Miami á Flórída.

„Það sem ég lærði af því að leika í Moonlight er hvað gerist þegar fólk er ofsótt. Það fer inn í sig. Ég var svo þakklátur fyrir að fá tækifæri til að leika Juan, þennan mann sem sér unga manninn fara inn í sig því hann er ofsóttur í samfélaginu, og segir við hann að hann skipti máli og það sé í lagi að vera eins og hann er. Ég vona að við gerum enn betur en það,“ sagði Ali og uppskar lófaklapp.

Lista yfir vinningshafa kvöldsins má sjá hér að neðan:

Besta leikkona í gamanþætti

Uzo Aduba, Orange Is the New Black

Jane Fonda, Grace and Frankie

Ellie Kemper, Unbreakable Kimmy Schmidt

Sigurvegari: Julia Louis-Dreyfus, Veep

Lily Tomlin, Grace and Frankie

Besti leikari í gamanþætti

Anthony Anderson, Black-ish

Tituss Burgess, Unbreakable Kimmy Schmidt

Ty Burrell, Modern Family

Sigurvegari: William H Macy, Shameless

Jeffrey Tambor, Transparent

Besti leikarahópurinn í gamanþætti

The Big Bang Theory

Black-ish

Modern Family

Sigurvegari: Orange is the New Black

Veep

Besta leikkona í aukahlutverki

Sigurvegari: Viola Davis, Fences

Naomie Harris, Moonlight

Nicole Kidman, Lion

Octavia Spencer, Hidden Figures

Michelle Williams, Manchester by the Sea

Besti leikari í aukahlutverki

Sigurvegari: Mahershala Ali, Moonlight

Jeff Bridges, Hell or High Water

Hugh Grant, Florence Foster Jenkins

Lucas Hedges, Manchester by the Sea

Dev Patel, Lion

Besta leikkona í sjónvarpsmynd/mini-seríu

Bryce Dallas Howard, Black Mirror

Felicity Huffman, American Crime

Audra McDonald, Lady Day at Emerson’s Bar & Grill

Sigurvegari: Sarah Paulson, The People v OJ Simpson: American Crime Story

Kerry Washington, Confirmation

Besti leikari í sjónvarpsmynd/mini-seríu

Riz Ahmed, The Night Of

Sterling K Brown, The People v OJ Simpson: American Crime Story

Sigurvegari: Bryan Cranston, All the Way

John Turturro, The Night Of

Courtney B Vance, The People v OJ Simpson: American Crime Story

Besti leikari í dramaþætti

Sterling K Brown, This Is Us

Peter Dinklage, Game of Thrones

Sigurvegari: John Lithgow, The Crown

Rami Malek, Mr Robot

Kevin Spacey, House of Cards

Besta leikkona í dramaþætti

Millie Bobby Brown, Stranger Things

Sigurvegari: Claire Foy, The Crown

Thandie Newton, Westworld

Winona Ryder, Stranger Things

Robin Wright, House of Cards

Besti leikarahópurinn í dramaþætti

The Crown

Downton Abbey

Game of Thrones

Sigurvegari: Stranger Things

Westworld

Besta leikkonan

Amy Adams, Arrival

Emily Blunt, The Girl on the Train

Natalie Portman, Jackie

Sigurvegari: Emma Stone, La La Land

Meryl Streep, Florence Foster Jenkins

Best leikarinn

Casey Affleck, Manchester by the Sea

Andrew Garfield, Hacksaw Ridge

Ryan Gosling, La La Land

Viggo Mortensen, Captain Fantastic

Sigurvegari: Denzel Washington, Fences

Besti leikarahópurinn

Captain Fantastic

Fences

Sigurvegari: Hidden Figures

Manchester by the Sea

Moonlight






Fleiri fréttir

Sjá meira


×