Lífið

Stjörnurnar gullfallegar sköllóttar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Annie, Björgvin, Jón, Þorvaldur, Ragnhildur og Saga.
Annie, Björgvin, Jón, Þorvaldur, Ragnhildur og Saga.
Það þarf Kraft til að takast á við krabbamein. Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, boðar til vitundarvakningar um ungt fólk og krabbamein. 

Félagsmenn Krafts eru krabbameinsgreindir einstaklingar á aldrinum 18 - 40 ára og aðstandendur. Megin markmið átaksins er að vekja athygli á aðstæðum þessa fólks.  Auk þess verður leitað til almennings að gerast mánaðarlegir styrktaraðilar til að styðja við bakið á starfseminni. 

Hluti af herferð Krafts verður að perla armbönd sem á stendur „Lífið er núna“ og eru þau  seld til styrktar Krafti.

Stuðningsfélagið leitar til almennings um hjálp við að perla armböndin. Þann 14. janúar verður Perlað með Krafti á Kexinu milli 12 og 17. Eins og fyrr greinir verða þessi armbönd seld til styrktar Krafti í vefverslun Krafts á www.kraftur.org/vefverslun eða á www.lifidernuna.is og þar getur fólk einnig skráð sig sem mánaðarlega styrktaraðila.

Kraftur, stuðningsfélag, var stofnað árið 1999 og byggir afkomu sína alfarið á velvilja almennings og fyrirtækja.

Megin ástæða þess að félagið fer út í átak sem þetta er m.a. til að styrkja fjárhagslegar stoðir þess. Helstu verkefni Krafts eru að reka faglegt stuðningsnet þar sem jafningjar styðja aðra  með sömu lífsreynslu.

Félagið úthlutar einnig styrkjum úr sérstökum neyðarsjóði til ungs fólks með krabbamein til að standa straum af læknis- og lyfjakostnaði, heldur úti útivistar- og endurhæfingarhópnum FítonsKrafti og veitir einnig endurgjaldslausa sálfræðiþjónustu.

Félagið fékk nokkra þekkta aðila með sér í lið til og ganga myndir af þeim sköllóttum um samfélagsmiðla. Um er að ræða þekkt fólk á borð við Annie Mist Þórisdóttur, Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur, Björgvini Páli Gústafssyni, Jóni Jónssyni, Sögu Garðarsdóttur og Þorvaldi Davíð Kristjánssyni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×