Sport

Stjörnurnar fjölmenna á bardaga Conors og Mayweather

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
LeBron fær sér örugglega rauðvínsglas með Dana White.
LeBron fær sér örugglega rauðvínsglas með Dana White. vísir/getty
Stærsti bardagi aldarinnar er á laugardag og þeir sem vilja vera menn með mönnum verða að mæta. Það verður líka enginn skortur á stórstjörnum.

Það er búist við að minnsta kosti fimm Óskarsverðlaunahöfum, þrettán Grammy-verðlaunahöfum og átta meisturum úr NFL og NBA.

Stærstu leikararnir sem hafa boðað komu sína eru Denzel Washington, Angelina Jolie, Jamie Foxx og Mark Wahlberg.

Tónlistarkappar á borð við P Diddy, LL Cool J, Drake og Adam Levine ætla líka að láta sjá sig.

Svo verður NBA-stjarnan LeBron James á svæðinu sem og Robert Kraft, eigandi NFL-meistara New England Patriots.

Það á svo klárlega eftir að fjölga í þessum stjörnuhópi á næstu dögum.

Bardagi Conors og Mayweather fer fram á laugardag en bardaginn verður í beinni á Stöð 2 Sport. Hægt er að kaupa áskrift á 365.is.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×