Bíó og sjónvarp

Stjörnur fara með tónsmíðar í The Amazing Spider Man 2

Pharrell og Alicia Keys
Pharrell og Alicia Keys Vísir/Getty
Leikstjóri The Amazing Spider-Man 2, Marc Webb og tónsmiðurinn Hans Zimmer lögðu greinilega mikið upp úr tónlist myndarinnar, en þeir skipuðu hverja stjörnuna á fætur annarri í hlutverk við að semja tónlist við myndina.

Myndin verður frumsýnd vestanhafs í byrjun maí.

Á meðal þeirra tónlistarmanna sem leggja hönd á plóg erPharrell, Johnny Marr, einn upprunalegra meðlima The Smiths og Michael Einziger, stofnandi og gítarleikari Incubus.

Þá koma Alicia Keys og Kendrick Lamar einnig til með að eiga lag í myndinni.

Stiklu úr myndinni má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×