Íslenski boltinn

Stjörnumenn í stuði í fyrsta Evrópuleiknum - sjáið mörkin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stjarnan setti upp sýningu í frumsýningu karlaliðs félagsins í Evrópukeppni í Garðabænum í kvöld en Stjarnan vann 4-0 sigur á velska liðinu Bangor City í fyrsta Evrópuleik karlaliðs félagsins.

Ólafur Karl Finsen skoraði tvö mörk fyrir Stjörnuna á Samsung-vellinum í kvöld þar af annað þeirra úr vítaspyrnu. Hin mörkin skoruðu þeir Veigar Páll Gunnarsson og Arnar Már Björgvinsson.

Stjarnan er þar með í frábærum málum fyrir seinni leik liðanna í 1. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar en hann verður spilaður í Wales í næstu viku.

Myndband með öllum fjórum mörkum Stjörnuliðsins í þessum sögulega leik eru nú aðgengileg inn á Sjónvarpsvef Vísis eða með því að smella hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir

FH-ingar skoruðu þrjú mörk í lokin - sjáið mörkin

FH-ingar þurftu að bíða lengi eftir fyrsta marki sínu en þau komu síðan á færibandi á lokakaflanum í 3-0 sigri FH á Glenavon í fyrri leik liðanna í í 1. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar.

Davíð Þór: Það var bara Höddi Magg sem klúðraði þessu fyrir 19 árum

"Við undirbjuggum okkur vel fyrir leikinn og við vissum af því að þeir væru líklegir til að þreytast. Þeir eru bara búnir að æfa í þrjár vikur og þeir gáfu aðeins eftir þegar líða tók á leikinn,“ sagði Davíð Þór Viðarsson, leikmaður FH, eftir 3-0 á norður-írska liðinu Glenovan í 1. umferð í forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld.

Framarar féllu á klaufalegu marki - myndband

Framarar töpuðu í kvöld 0-1 fyrir eistneska liðinu Kalju Nömme í fyrstu umferð forkeppni Evrópudeildarinnar en sigurmark gestanna var af klaufalegri gerðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×