Lífið

Stjörnum prýtt snapp Audda hitti í mark: Notaði nakinn Sveppa sem fótaskemil

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtileg saga frá Audda.
Skemmtileg saga frá Audda.
Auðunn Blöndal fékk það verkefni að „eyða“ einni milljón á Snapchat-reikningi FM95BLÖ í gær, rétt eins og félagar hans Egill Einarsson og Steinþór Hróar hafa gert í vikunni.

Um er að ræða keppni á vegum smáforritsins Kass en Egill, Steindi Jr. og Auðunn Blöndal fá einn dag á mann. Sá sem gerir skemmtilegustu söguna á Snapchat vinnur 100.000 sem fara til góðgerðamála.

Auðunn Blöndal er nokkuð þekktur maður hér á Íslandi og fór hann því alla leið á Snappinu. Auddi lét Loga Bergmann keyra sig út um allt. Pétur Jóhann þreif heima hjá honum dansandi og hálfnakinn, Hjörvar Hafliðason tók kappann í gegn í ræktinni með andlegri handleiðslu og var Sveppi notaður sem mennskur fótaskemill, já og það nakinn.

Kass dregur einn heppinn vinningshafa út fyrir 20. desember og sá vinnur í raun og veru eina milljón.

Hér að neðan má sjá  allar sögurnar sem birtust á Snapchat-reikningi FM95BLÖ (fm95blo) í vikunni. Þegar 8:30 eru liðnar af myndbandinu hér að neðan byrjar Auðunn Blöndal að fara á kostum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×