Glamour

Stjörnum prýddur pallur hjá Versace

Ritstjórn skrifar
Glamour/getty
Janúar er svo sannarlega ekki leiðinlegur mánuður, því í gær hófust Haute Couture sýningar tískuhúsanna.

Það var engin önnur en Donatella Versace sem reið á vaðið og sýndi einfalda litapallettu, sem einkenndist af svörtu og hvítu, rauðum, bláum og gulum, sportlegan fatnað og efnislitla kjóla. Grafísk snið og hnútar voru einnig áberandi.

Það kæmi ekki á óvart ef einhver af þessum kjólum myndi rata á rauða dregilinn á Óskarsverðlaununum í lok febrúar, eða að minnsta kosti á dregilinn í Vanity Fair eftirpartýinu.

Eins og Donatellu einni er lagið, fékk hún margar af frægustu fyrirsætum heims til að ganga pallana eins og Gigi Hadid, Rosie Huntington-Whiteley, Behati Prinsloo, Irina Shayk, Lara Stone og Natasha Poly. Og á fremsta bekk mátti finna hönnuðina Alexander Wang, Riccardo Tici og Anthony Vaccarello.

Förðunin var í höndum hinnar einu sönnu Pat McGrath, og var hún í anda Versace eins og oftast; dökkt smokey.






×