Lífið

Stjörnum prýdd afmælisveisla Madonnu

Madonna kann að halda góð partí.
Madonna kann að halda góð partí. Vísir/Getty
Söngkonan Madonna fagnaði 56 ára afmæli sínu um helgina með miklum hátíðarhöldum í franska strandbænum Cannes. Þemað í veislunni var þriðji áratugurinn þar sem helstu stjörnurnar tískuheimsins létu sig ekki vanta.

Fyrirsætan Kate Moss fór mikinn í veislunni og sat meðal annars fyrir á mörgum myndum með afmælisbarninu sjálfu. Einnig var þar að finna Mert Alas, Marcus Piggott, fatahönnuðinn og yfirhönnuð Givenchy Riccardo Tisci og Dean og Dan Caten hjá Dsquared.

Börn Madonnu létu sig heldur ekki vanta en bæði þau Rocco og Mercy voru í búning og fögnuðu með móður sinni. Madonna skemmti sér hið besta og má segja að partíið hafi alveg eins getað átt sér stað í bíómyndinni The Great Gatsby.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×