Handbolti

Stjörnukonur í stuði í seinni á Selfossi | Öll úrslitin í kvennahandboltanum í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sunna María Einarsdóttir skoraði tíu mörk í Grafarvogi í kvöld.
Sunna María Einarsdóttir skoraði tíu mörk í Grafarvogi í kvöld. Vísir/Andri Marinó
Fimm leikir fóru fram í þriðju síðustu umferð Olís-deildar kvenna í handbolta í kvöld og unnu Stjarnan, Grótta, ÍR, Fram og Haukar leiki sína.

Stjörnukonur sóttu tvö stig á Selfoss þar sem þær fóru á kostum í seinni hálfleiknum. Stjarnan var aðeins einu marki yfir í hálfleik en vann seinni hálfleikinn 19-7 og þar með leikinn með þrettán marka mun, 31-18.

Gróttukonur unnu einnig öruggan útisigur en þær mættu í Grafarvoginn og unnu Fjölniskonur 31-17. Sunna María Einarsdóttir fór á kostum og skoraði tíu mörk í leiknum.

ÍR vann 25-22 heimasigur á FH þar sem unglingalandsliðskonurnar Brynhildur Bergmann Kjartansdóttir og Sólveig Lára Kristjánsdóttir fóru fyrir Breiðholtsliðinu.

Sigurbjörg Jóhannsdóttir var atkvæðamest hjá Fram í þriggja marka sigri eftir hörkuleik á móti Fylki en hún skoraði átta mörk.



Leikir og markaskorarar í Olís-deild kvenna í kvöld:

ÍR - FH 25-22 (15-10)

Mörk ÍR: Brynhildur Bergmann Kjartansdóttir 7, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 5, Sigrún Ása Ásgrímsdóttir 3, Silja Ísberg 3, Karen Tinna Demian 2, Elín Birta Pálsdóttir 2, Jóhanna Björk Viktorsdóttir 2, Stefanía Ósk Sigurjónsdóttir 1.

Mörk FH: Ingibjörg Pálmadóttir 5, Hildur Marín Andrésdóttir 4, Heiðdís Rún Guðmundsdóttir 3, Rakel Sigurðardóttir 3, Elín Anna Baldursdóttir 3, Sara Kristjánsdóttir 2, Steinunn Snorradóttir 1, Jóhanna Helga Jensdóttir 1.



Fram - Fylkir 23-20 (14-13)

Mörk Fram: Sigurbjörg Jóhannsdóttir 8, Ragnheiður Júlíusdóttir 4, Steinunn Björnsdóttir 3, Hekla Rún Ámundadóttir 2, Ásta Birna Gunnarsdóttir 2, Elva Þóra Arnardóttir 1, Hildur Þorgeirsdóttir 1, Hulda Dagsdóttir 1, Arna Þyri Ólafsdóttir 1.

Mörk Fylkis: Patrícia Szölösi 9, Thea Imani Sturludóttir 4, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir 2, Hildur Björnsdóttir 2, Kristjana Björk Steinarsdóttir 2, Þuríður Guðjónsdóttir 1.



Fjölnir - Grótta 17-31 (9-14)

Mörk Fjölnis: Díana Kristín Sigmarsdóttir 7, Berglind Benediktsdóttir 4, Tinna Laxdal Gautadóttir 3, Andrea Björk Harðardóttir 1, Guðrún Jenný Sigurðardóttir 1, Díana Ágústsdóttir 1.

Mörk Gróttu: Sunna María Einarsdóttir 10, Arndís María Erlingsdóttir 5, Þórunn Friðriksdóttir 4, Laufey Ásta Guðmundsdóttir 3, Eva Margrét Kristinsdóttir 3, Þórey Anna Ásgeirsdóttir 2, Unnur Ómarsdóttir 1, Anna Katrín Stefánsdóttir 1, Edda Þórunn Þórarinsdóttir 1, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 1.



Selfoss - Stjarnan 18-31 (11-12)

Mörk Selfoss: Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 5, Carmen Palamariu 4, Adina Maria Ghidoarca 3, Elena Elísabet Birgisdóttir 2, Perla Ruth Albertsdóttir 2, Hildur Öder Einarsdóttir 1, Steinunn Hansdóttir 1.

Mörk Stjörnunnar: Solveig Lára Kjærnested 7, Helena Rut Örvarsdóttir 6, Hanna Guðrún Stefánsdóttir 6, Stefanía Theodórsdóttir 4, Guðrún Erla Bjarnadóttir 2, Nataly Sæunn Valencia 2, Sandra Rakocevic 2, Þórhildur Gunnarsdóttir 2.



Haukar - Valur 23-22



Mörk Hauka (skot): Maria Ines De Silve Pereira 8/2 (8/2), Ramune Pekarskyte 7 (15/1), María Karlsdóttir 2 (3), Jóna Sigríður Halldórsdóttir 2 (3), Erla Eiríksdóttir 2 (4), Ragnheiður Sveinsdóttir 1 (2), Karen Helga Díönudóttir 1 (7/1).

Varin skot: Elín Jóna Þorsteinsdóttir 17 (39/2, 44%),

Mörk Vals (skot): Bryndís Elín Wöhler 4 (4), Sigurlaug Rúnarsdóttir 4 (6), Morgan Marie Þorkelsdóttir 4 (9), Kristín Guðmundsdóttir 4/2 (23/3), Sólveig Lóa Höskuldsdóttir 2 (2), Íris Ásta Pétursdóttir 2 (7), Vigdís Birna Þorsteinsdóttir 1 (1), Gerður Arinbjarnar 1 (2).

Varin skot: Berglind Íris Hansdóttir 13/2 (36/4, 36%).


Tengdar fréttir

Vera Lopes fór á kostum í naumum sigri ÍBV

ÍBV vann nauman sigur á HK á heimavelli í Olís-deild kvenna í dag en með sigrinum er ÍBV komið aftur á sigurbraut eftir fjóra leik í röð án sigurs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×