MÁNUDAGUR 20. MAÍ NÝJAST 23:30

Di Canio úthúðar Phil Bardsley

SPORT

Stjörnubjart í Grindavík

Fréttablaðið Körfubolti 17. apríl 2012 06:00
Justin Shouse og félagar í Stjörnunni fóru á kostum í Grindavík í gær.
Justin Shouse og félagar í Stjörnunni fóru á kostum í Grindavík í gær. MYND/DANÍEL
Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar:
Stjarnan sigraði Grindavík 82-65 í þriðja leik liðanna í úrslitakeppninni í gær og minnkaði Stjarnan þar með muninn í einvíginu í 2-1. Eins og tölurnar gefa til kynna var Stjarnan mun betri í leiknum og sigurinn sanngjarn en tólf stigum munaði á liðunum í hálfleik 46-34.

„Þessi leikur var rökrétt framhald af fyrri leikjunum, við erum á uppleið. Við erum að verða betri og við hefðum getað, ekki einu sinni með heppni, verið á leið á heimavöll 2-1 yfir en það varð ekki og við þurfum að fara heim og jafna seríuna," sagði Teitur Örlygsson þjálfari Stjörnunnar eftir leikinn.

„Við vitum hvaða vinnu þetta kostar. Það er frábær karakter og barátta í liðinu, hún er til fyrirmyndar og við þurfum að taka það með okkur inn í næsta leik," sagði Teitur en Stjarnan lagði grunninn að sigrinum með því að sækja inn í teig og hitta úr opnum skotum í kjölfarið auk þess sem liðið lék frábæra vörn í leiknum.

„Við náðum að sækja vel á körfuna, þeir eru breiðir Grindvíkingarnir en þeir eru ekkert rosalega stórir. Við fórum að hitta úr opnum skotum. Við breytum aðeins leikskipulaginu okkar, þeir voru búnir að svindla aðeins, skáta okkur full mikið og það náðum við að fara í gegnum."

„Ég hef engar áhyggjur af vörninni. Vörnin og baráttan er til staðar og það heldur okkur inni í leikjunum og þegar við leikum sóknina betur þá erum við flottir," sagði Teitur sem segir stóran sigur sinna manna ekki hjálpa liðinu neitt í komandi leikjum.

„Ég hef tekið þátt í svo mörgum úrslitakeppnum. Ég man eftir því þegar Njarðvík og Keflavík voru að vinna með 30 til 40 stiga mun og það voru stundum 60 til 70 stiga sveiflur á milli leikja. Það skiptir engu máli. Þetta var einn sigur, við minnkuðum muninn og nú þurfum við að fara heim og jafna þetta," sagði Teitur að lokum.

Grindvíkingar virkuðu andlausir í leiknum og virtust ekki klárir í að sópa Stjörnunni út úr úrslitakeppninni eins og liðið hefði gert með sigri. Ljóst er að liðið þarf að leika mun betur og af mun meiri ákefð ætli liðið að klára einvígið þegar liðin mætast í Garðabæ á sumardaginn fyrsta.

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Körfubolti 19. maí 2013 22:06

Tony Parker frábær og San Antonio leiðir 1-0

San Antonio Spurs vann öruggan 105-83 sigur á Memphis Grizzlies í fyrsta leik liðanna í úrslitum Vesturdeildar NBA í kvöld. Meira
Körfubolti 19. maí 2013 13:32

14 stig Jóns Arnórs í lokaumferðinni

Jón Arnór Stefánsson skoraði 14 stig fyrir CAI Zaragoza sem lagði UCAM Murcia 108-74 í lokaumferð spænsku deildarkeppninnar í dag. Meira
Körfubolti 19. maí 2013 11:42

Berst fyrir lífi sínu eftir hnífstungu

Predrag Danilovic, sem árið 1994 var valinn besti körfuboltamaður Evrópu, berst fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi í Belgrad. Meira
Körfubolti 19. maí 2013 11:15

Indiana kláraði New York

Indiana Pacers tryggði sér í nótt sæti í úrslitum Austurdeildar NBA með 106-99 sigri á New York Knicks í sjötta leik liðanna. Meira
Körfubolti 18. maí 2013 12:45

Búið að selja Sacramento Kings

Kevin Johnson borgarstjóri Sacramento tilkynnti í gær að eigendur NBA körfuboltaliðsins Sacramento Kings hafa samþykkt að selja hugbúnaðarviðskiptajöfrinum Vivek Ranadive félagið. Meira
Körfubolti 18. maí 2013 11:00

Nowitzki tilbúinn að lækka launinn

Dirk Nowitzki þýska stórstjarna NBA körfuboltaliðsins Dallas Mavericks hyggst taka á sig verulega launalækkun næsta sumar í von um að lokka aðra stórstjörnu til liðsins. Meira
Körfubolti 17. maí 2013 23:30

Phil Jackson: Jordan var miklu meiri leiðtogi en Kobe

Phil Jackson vann fjölmarga NBA-titla með bæði Michael Jordan (6) og Kobe Bryant (5) en hefur hingað til ekki verið mikið fyrir að bera þessa tvo stórbrotnu leikmenn saman eða fyrr en nú. Jackson ber ... Meira
Körfubolti 17. maí 2013 22:48

Siggi Ingimundar þjálfar ekki áfram í Keflavík

Sigurður Ingimundarson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Keflavíkur í Dominos-deild kvenna, verður ekki áfram þjálfari meistaraflokka Keflavíkur en hann þjálfaði einnig karlaliðið síðasta vetur. Þet... Meira
Körfubolti 17. maí 2013 09:00

Reynslan hafði betur | Golden State úr leik

San Antonio er komið áfram í úrslit Vesturdeildarinnar í NBA-deildinni í körfubolta eftir sigur á Golden State í nótt, 94-82. Meira
Körfubolti 16. maí 2013 10:30

Jón Halldór þjálfar Grindavík

Keflvíkingurinn Jón Halldór Eðvaldsson hefur gert tveggja ára samning við Grindavík um að stýra kvennaliði félagsins í körfubolta. Meira
Körfubolti 16. maí 2013 09:00

Miami og Memphis áfram

Oklahoma City og Chicago Bulls eru bæði úr leik í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta eftir að hafa tapað rimmum sínum 4-1. Meira
Körfubolti 15. maí 2013 22:36

Oddur og Oddur sömdu við Val

Nýliðar Vals hafa styrkt sig með tveimur leikmönnum fyrir komandi tímabil í Dominos-deild karla í körfubolta en það eru þeir Oddur Birnir Pétursson og Oddur Ólafsson. Þetta kom fyrst fram á karfan.is ... Meira
Körfubolti 15. maí 2013 07:00

San Antonio náði forystunni á ný

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. San Antonio og Indiana unnu þá sigra á heimavelli. Meira
Körfubolti 14. maí 2013 23:17

Falur nýr formaður í Keflavík - Guðjón og Albert kom inn í stjórn

Falur Jóhann Harðarson, margfaldur Íslandsmeistari með Keflavík sem bæði leikmaður og þjálfari, er tekinn við sem formaður Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Meira
Körfubolti 14. maí 2013 07:45

Skoraði í eigin körfu | Myndband

Chicago Bulls lenti í alls kyns vandræðum gegn Miami Heat í nótt en vandræðalegasta "skot“ kvöldsins átti bakvörðurinn Marquis Teague. Meira
Körfubolti 14. maí 2013 07:00

Miami og Memphis komin í 3-1

Miami og Memphis unnu bæði lykilleiki í rimmum sínum í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Meira
Körfubolti 13. maí 2013 19:30

Fékk rúmlega fjögurra milljóna króna sekt

Tom Thibodeau, þjálfari Chicago Bulls, var ekki sáttur við dómgæsluna í fyrstu þremur leikjunum í einvígi hans manna og Miami Heat í NBA-deildinni í körfubolta og lét nokkur vafasöm orð fjalla á blaða... Meira
Körfubolti 13. maí 2013 06:54

Curry meiddur en spilaði í sigri Golden State

Hið unga lið Golden State Warriors náði í gærkvöldi að jafna metin gegn San Antonio Spurs í rimmu liðanna í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta. Meira
Körfubolti 12. maí 2013 19:14

Þrjú silfur og fjögur í úrvalsliðum NM unglinga í körfu

Íslensku unglingalandsliðin í körfubolta unnu til þrennra silfurverðlaun á Norðurlandamóti unglinga í körfubolta sem lauk í Stokkhólmi í dag. Bæði 18 ára liðin sem og 16 ára lið karla urðu í 2. sæti á... Meira
Körfubolti 12. maí 2013 09:28

Durant brást bogalistin

Memphis Grizzlies tók 2-1 forystu gegn Oklahoma City Thunder með 87-81 sigri í Memphis í undanúrslitum Vesturdeildar NBA í nótt. Meira
Körfubolti 11. maí 2013 11:00

Heat og Spurs á sigurbraut

Meistarar Miami Heat eru komnir með 2-1 forskot í rimmunni gegn Chicago Bulls en liðið vann sannfærandi tíu stiga sigur í nótt. Meira
Körfubolti 11. maí 2013 00:01

Pettinella átti drykkinn

Körfuknattleikskappinn Ómar Örn Sævarsson hjá Grindavík var í gær dæmdur í sex mánaða keppnisbann en hann féll á lyfjaprófi. Ómar segist aðeins hafa drukkið tvo sopa af orkudrykk sem liðsfélagi hans á... Meira
Körfubolti 10. maí 2013 18:00

Puttinn pirraði Noah

Ein vinsælasta myndin á internetinu í dag er mynd af sturlaðri konu í Miami sem er með miðfingurinn beint fyrir framan andlit Joakim Noah, leikmanns Chicago Bulls. Meira
Körfubolti 10. maí 2013 13:03

16 ára liðið slátraði Finnum

U16 ára landslið Íslands í körfubolta heldur áfram sigurför sinni á Norðurlandamótinu í Svíþjóð. Meira
Körfubolti 09. maí 2013 11:04

Gerði sig að fífli

Stuðningsmaður Miami Heat vaknaði vafalítið við vondan draum í morgun þegar hún kynnti sér umfjöllunarefni íþróttamiðla vestanhafs. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Sport / Körfubolti / Stjörnubjart í Grindavík
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000