Skoðun

Stjórnmál og leikir

Eiríkur Guðjónsson Wulcan skrifar
Við erum búinn að njóta sýningar þar sem Davíð Oddsson bauð sig fram til forseta og tókst að einoka alla umræðu um forsetakosningarnar.

Hvað var ekki talað um á meðan?

Ekki fór D.O. fram í þeirri trú að hann ynni kosningarnar. Eini beini árangurinn var að skáka Ólafi Ragnari Grímssyni út af borðinu, það hefur sjálfsagt veitt D.O. vissa ánægju en það var ekki markmiðið með þessu framboði.

Markmiðið var að taka yfir sviðið. Láta umræðuna snúast um eitthvað sem ekki skipti máli því í húfi voru stóru málin.

Þriðja hver króna út úr hagkerfinu

Það mátti ekki beina athyglinni að því að stór hluti íslensks efnahagslífs fer fram utan landhelgi. Þriðja hver króna fer ósköttuð út úr hagkerfinu á sama tíma og kostnaðarþátttaka sjúklinga eykst og Landspítalinn heldur áfram að mygla.

Skattbyrðin helst óbreytt hjá venjulegu launafólki og kaupmátturinn er hlægilegur ef miðað er við lönd eins og Færeyjar.

Hin nýja lénsstétt sem á kvótann og hirðir gróðann og flytur fram hjá íslenska hagkerfinu hefur öllu að tapa.

Breytingar á stjórnarskránni eru eitur í hennar beinum, að ekki sé talað um gjald fyrir kvóta.

Davíð Oddssyni er ýtt fram á sviðið til þess að dansa sinn pólitíska dauðadans í sviðsljósinu á meðan það mikil­væga er látið í friði.

Spurningin er hvort Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra, ætlar að leika sama leikinn.

Hann virðist ætla að halda upp á 100 ára afmæli Framsóknarflokksins með því að draga hann með sér í pólitíska gröf á Tortóla.

Hann getur ekki verið að hugsa um hag flokksins þegar hann stefnir að því að veita honum forystu. Hann varð uppvís að því að eiginkona hans og barnsmóðir sat hinum megin við borðið þegar hann var að semja um hagsmuni þjóðarinnar sem hann átti að veita forystu.

Það breytir engu að efnahag þjóðarinnar var bjargað með því að ferðamönnum fjölgaði. Það er ekki hægt að gleyma því að eiginkona forsætisráðherrans kaus að varðveita sinn auð utan þess efnahagskerfis sem forsætisráðherrann átti að stýra og vernda.

Gróf sína eigin gröf

Það er ekki hægt að segja að öll hans ógæfa hafi verið að kenna einum rannsóknarblaðamanni sem búið var að reka frá nánast öllum fjölmiðlum á landinu.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gróf sína eigin gröf án aðstoðar. Jóhannes Kr. Kristjánsson var einungis sekur um að segja frá því.

Ef honum tekst að valta yfir Sjálfstæðisflokkinn og hindra kosningar í haust þá gæti hann slegið Davíð Oddsson út. Umræðan verður þá ekki um neitt óþægilegt.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×