Skoðun

Stjórnarskráin eina kosningamálið

Arnþór Sigurðsson skrifar
Komið hefur fram sú hugmynd að einungis eitt mál verði á dagskrá í næstu þingkosningu. Þetta eina mál er kosning um stjórnarskrána. Hugmyndin er sú að almenningur setji málið á dagskrá og geri þá kröfu að þeir flokkar sem komi til með að bjóða fram lista til alþingskosninga gefi upp hvort þeir muni sameinast um meirihluta um samþykkt á nýrri stjórnarskrá, þeirri sem stjórnlagaráð hefur þegar lagt fram til þingsins en var aldrei afgreidd.

Krafan verði sú að þingið verði stutt og þetta eina mál verði verkefni nýs meirihluta og afgreitt, þinginu slitið og boðað verði til kosninga á ný.

Með þessu er hlutunum snúið á hvolf. Almenningur stillir flokkunum upp við vegg með þessa einu spurningu, með eða á móti nýrri stjórnarskrá. Í grunninn er þetta mjög einfalt og ætti að vera framkvæmanlegt. Því fleiri sem fylgja þessari hugmynd því meiri möguleiki á því að hún verði að veruleika.

Það er viðbúið að þeir flokkar sem ekki vilji að þetta gerist reyni að þvæla málið og flækja en með fókus á þetta eina mál má koma í veg fyrir að þetta verið eyðilagt eins og eflaust verður reynt að gera. Það er mín sannfæring að meirihluti þjóðarinnar er fylgjandi því að ný stjórnarskrá verði samþykkt eins og stjórnlagaráð lagið hana fram.

Það er líka mín sannfæring að þetta sé gerlegt. Það er hinsvegar undir þjóðinni sjálfri komið hvort að þetta geti gerst. Enn er töluverður tími til næstu kosninga ef núverandi ríkisstjórn heldur út kjörtímabilið og er því nægur tími til þess að undirbúa málið.

Kosturinn við þessa aðferð er sú að þeir sem kjósa ákveðna flokka út af einhverjum sérstökum ástæðum geta brugðið út af vananum og valið þann flokk sem þeir treysta til verksins. Þeir geta síðan kosið sinn flokk að nýju aftur að nokkrum mánuðum liðnum þegar boðað verður til kosninga á ný eftir að þingið hefur lokið störfum. Hugmyndin er spennandi að því leyti að þjóðin tekur fram fyrir hendurnar á flokkakerfinu og setur þeim fyrir verkum. Gylliboð flokkanna flækjast ekki fyrir ef þjóðin hundsar þau en setur fókus á aðeins eitt mál. Nýja stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×