Erlent

Stjórnarherinn gerir gagnárás

Samúel Karl Ólason skrifar
Rússneskir hermenn undirbúa herþotu fyrir árásir.
Rússneskir hermenn undirbúa herþotu fyrir árásir. Vísir/EPA
Rússnesk herskip í Kaspíahafi hafa skotið flugskeytum á stöðvar uppreisnarmanna í Sýrlandi. Varnarmálaráðherra Rússlands, Sergei Shoigu, segir að fjögur skip hafi skotið 26 flugskeytum á ellefu skotmörk og eytt þeim öllum. Embættismenn í Sýrlandi segja sýrlenska herinn hafa hafið gagnárás gegn uppreisnarmönnum.

Enn þræta Rússar fyrir að loftárásir þeirra beinist gegn öðrum en Íslamska ríkinu, en mannréttindasamtök segja barist í Hama og Idlib héruðum Sýrlands. Þar stjórna aðrir aðilar en ISIS. Sókn hersins er studd af írönskum sérsveitum, loftárásum Rússa og meðlimum Hezbollah.

Hér má sjá hvar Rússar hafa veirð að gera loftárásir síðustu daga. Flestar þeirra hafa verið í Idlib héraði þar sem harðir geisa nú.Vísir/GraphicNews
Meðlimir Free Syrian Army hafa nú birt myndir af rússneskum skriðdreka í ljósum logum og segja hana hafa verið tekna nú í morgun.

Putin sagði fyrr í dag að Francois Hollande, forseti Frakklands, hefði nýverið stungið upp á því að sýrlenski herinn og uppreisnarhópurinn Free Syrian Army mynduðu bandalag gegn hryðjuverkasamtökum eins og Íslamska ríkinu og Nusra Front, sem er deild Al-Qaeda í Sýrlandi.

Putin sagði að þar sem Free Syrian Army eigi að vera í forsvari fyrir það sem kallað hefur verið „hófsamir uppreisnarmenn“ gæti slíkt samstarf skapað góðan grundvöll fyrir pólitíska lausn á borgarastyrjöldinni í Sýrlandi.

Uppfært: 13:30 Aðstoðarmaður Hollande segir að forsetinn hafi ekki stungið upp á bandalagi FSA og sýrlenska hersins.

Reuters fréttaveitan segir frá því að upphaf þátttöku Rússa í átökunum í Sýrlandi megi rekja til fundar hershöfðingja frá Íran með Rússum í maí. Þar sýndi Qassem Soleimani hve uppreisnarhópar hefðu sótt fram gegn sýrlenska hernum og hvernig inngrip Rússa gæti breytt stöðunni.

Þrátt fyrir stuðning Rússa og Íran frá því að borgarastyrjöldin hófst fyrir rúmum fjórum árum, heldur sýrlenski herinn nú eingöngu um fimmtungi af landinu. Nú hafa borist fregnir af því að hundruð sérsveitarmanna frá Íran muni taka þátt í gagnsókn sýrlenska hersins, auk um 3.000 meðlima Hezbollah samtakanna frá Líbanon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×