Innlent

Stjórnarandstaðan mun koma í veg fyrir LÍN-frumvarp

Gunnar Atli Gunnarsson skrifar
Stjórnarandstaðan mun koma í veg fyrir að LÍN-frumvarp menntamálaráðherra verði samþykkt enda málið ekki nógu gott. Þetta segir þingmaður Pírata en frumvarpið var afgreitt úr allsherjar- og menntamálanefnd í dag.

 

LÍN-frumvarp Illuga Gunnarssonar menntamálaráðherra var afgreitt úr allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis í hádeginu í dag. Frumvarpið hefur verið gagnrýnt, meðal annars af Háskóla Íslands, BHM og ASÍ. Líneik Anna Sævarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og framsögumaður málsins í nefndinni, segir meirihlutann gera þó nokkrar breytingar á frumvarpinu.

 

„Það eru breytingar sem að snúa að því að það verði auknar heimildir til að fella niður afborganir verði fólk fyrir óvæntum tekjumissi,“ segir Líneik. Þá sé námstími fyrir doktorsnám rýmkaður og heimilt verður að greiða námslán og styrki samhliða námi eftir að fyrsta misseri er lokið.

 

Frumvarpið hefur meðal annars verið gagnrýnt fyrir að auka ójöfnuð, kemur meirihlutinn til móts við þá gagnrýni?

 

„Ekki til móts við þá gagnrýni, enda tel ég hana ekki eiga rétt á sér,“ segir Líneik.

 

Byggist á villandi forsendum

Minnihluti nefndarinnar lagðist gegn því að málið yrði afgreitt úr henni í dag. Ásta Guðrún Helgadóttir, þingmaður Pírata, segir breytingartillögur meirihlutans ekki ganga nógu langt og frumvarpið sé illa unnið.

 

Kemur til greina að klára þetta frumvarp á þessu þingi?

 

„Stjórnarandstaðan mun setja fótinn fyrir hurðina þar. Það er alltof mikið að þessu frumvarpi. Meira að segja útreikningarnir sem eru til grundvallar, um að það verði lægri afborgunarbyrði, hún byggist á mjög villandi forsendum,“ segir Ásta.

 

Með hvaða hætti mun stjórnarandstaðan reyna að koma í veg fyrir málið?

 

„Við munum leggja fram frávísunartillögu þess efnis að þetta verði sent aftur til ráðuneytisins þar sem ráðherra verðu falið að skipa þverpólitíska nefnd. Við munum gera allt sem í okkar krafti stendur til þess að koma í veg fyrir að þetta frumvarp verði að lögum, einfaldlega af því að þetta frumvarp er ekki nógu gott,“ segir Ásta.


Tengdar fréttir

Stór mál eftir á Alþingi þegar stutt er í þingrof

Sjö stór mál eru eftir á Alþingi þegar nokkrir dagar eru eftir af þinginu. Nefndarmenn í efnahags- og viðskiptanefnd eru undir miklu álagi með langflest málin undir. Áhyggjur af því að stjórnarandstaðan hleypi LÍN-málinu ekki í gegn.

Ósáttir við LÍN-frumvarp

Félag læknanema gerir alvarlegar athugasemdir við nýtt frumvarp Illuga Gunnarssonar um Lánasjóð íslenskra námsmanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×